Hvar má besti vinurinn vera? 13. desember 2013 22:00 Hjónin Geir Gígja og Jónína Einarsdóttir með fjölskylduhundinn Ronju. Hugmyndin að vefsíðunni bestivinur.is vaknaði á ferðalagi með hundinn síðastliðið sumar. Mynd/Daníel
Á nýju vefsíðunni bestivinur.is er hægt að fá upplýsingar um öll hundasvæði landsins auk fróðleiks, skemmtilegra myndbanda, upplýsinga um námskeið og hvar finna megi hundagistingu. "Síðastliðið sumar vorum við fjölskyldan á ferðalagi um landið og hundurinn okkar með í för. Þá lentum við iðulega í vandræðum með hvar við mættum sleppa honum lausum. Mörg bæjar- og sveitarfélög hafa opnað sérstök hundasvæði þar sem hundar mega vera lausir en við rákum okkur á að upplýsingar um þessi svæði liggja ekki á lausu,“ segir Geir Gígja sem heldur ásamt konu sinni, Jónínu Einarsdóttur, úti vefnum tjalda.is þar sem er að finna upplýsingar um tjaldsvæði á landinu. „Okkur datt í framhaldinu í hug búa til vefsíðu þar sem hægt væri að finna öll hundasvæði landsins,“ segir hann og þannig vaknaði hugmyndin að vefsíðunni bestivinur.is. Geir segir fólk almennt ekki mjög upplýst um þau hundasvæði sem eru í boði. „Við búum í Hafnarfirði og þegar við höfum hitt hundaeigendur og sagt þeim frá hundasvæðinu hér í bænum vita fæstir af því.“ Geir segir ekki hafa verið hlaupið að því að útvega upplýsingar fyrir síðuna. „Ég margsendi pósta á sum sveitarfélögin en ég held að ég sé kominn með öll svæðin,“ segir hann og vonar að sveitarfélögin sjái sér hag í að láta hann vita þegar ný svæði bætast við. „Ég veit til þess að slík svæði eru í vinnslu á nokkrum stöðum á landinu.“ Á vefsíðunni bestivinur.is er að finna kort sem sýnir hundasvæði á öllu landinu. „Höfuðborgarsvæðið stendur ágætlega, líkt og Austurland og ákveðinn hluti af Norðurlandi, en á Vesturlandi og Vestfjörðum er ekki að finna nein slík svæði,“ upplýsir Geir sem telur síðuna ekki síst gagnast hundaeigendum á ferðalagi. Fleiri upplýsingar er að finna á síðunni. „Við höfum safnað saman lista yfir hundaþjálfara og -námskeið, hvar finna má pössun fyrir hundinn, annars vegar hótelpössun og hins vegar heimapössun. Við setjum inn fréttir og skemmtileg myndbönd af hundum og verðum auk þess með sérfræðinga sem skrifa pistla,“ segir Geir og lofar lifandi og skemmtilegum vef. Hundur fjölskyldunnar heitir Ronja og er af labradorkyni. Hún er fyrsti hundur þeirra og Geir segir þau læra eitthvað nýtt af henni á hverjum degi. „Hún er þriggja ára, getur gert mann gráhærðan á köflum og er yndisleg þess á milli,“ segir hann hlæjandi. „Maður lærði ekki almennilega þolinmæði fyrr en maður eignaðist hund,“ segir hann kíminn.nsolveig@365.is
Mest lesið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Beckham á spítala Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Lífið samstarf Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Laxveiði í net á góðum sumardegi 1993 í Óseyrarnesi Menning Fleiri fréttir Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Sjá meira