Lífið

„Selfies“ eru komnar til að vera

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Sjálfsmyndir, eða „selfies“, eins og þær eru kallaðar á ensku, njóta gríðarlegra vinsælda um þessar mundir. Þjóðarleiðtogar og geimfarar hafa tekið ástfóstri við fyrirbærið og segir Goddur, prófessor við Listaháskóla Íslands, þessar myndir vera tímana tákn.

„Þetta fyrirbæri sem gengur eins og fár núna á örugglega rætur sínar að rekja til snjallsímana. Það ganga allir með myndavélar á sér. Fólk er drifið áfram af félagshvötinni, hvötinni til að vera merkilegra en það í raun og veru er. Þetta er ekki tískubóla heldur tíðarandaeinkenni. Selfies eru komnar til að vera,“ segir Goddur.

Sérfræðingar háskólans í Oxford völdu orðið selfie sem orð ársins 2013 í enskri tungu. Notkun orðsins í allri umræðu á netinu, í fjölmiðlum og prentmáli hefur aukist um 17 þúsund prósent á tæpu ári.

Fjölmargar vefsíður tileinkaðar sjálfsmyndum hafa skotið upp kollinum síðustu ár og mánuði. Þó má segja að fyrirbærið hafi náð nýjum hæðum þegar þjóðarleiðtogarnir David Cameron, Helle Thorning-Schmidt og Barack Obama tóku sjálfsmynd af sér í miðri minningarhöfn Nelsons Mandela fyrr í vikunni. Goddur segir þetta gott dæmi um að sjálfsmyndir af þessum toga hafi fest sig í sessi.

„Þarna gat Helle ekki setið á sér. Hvötin til að sýna að þarna sæti hún með helstu foringjum heimsins varð sterkari en skynsemin. Þarna gengu þau í barndóm öll þrjú.“












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.