"Barnaperri“ sem starfaði á frístundaheimili játaði sök Valur Grettisson skrifar 1. júlí 2013 13:43 Rúmlega sextugur starfsmaður á frístundaheimili í Breiðholti kom fyrir dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun vegna ákæru ríkissaksóknar um vörslu barnakláms. Málið var þá þingfest. Mynd / Villi
Rúmlega sextugur starfsmaður á frístundaheimili í Breiðholti kom fyrir dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun vegna ákæru ríkissaksóknar um vörslu barnakláms. Málið var þá þingfest. Maðurinn játaði sök og hefur málið verið dómtekið. Maðurinn er ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft um nokkurt skeið yfir 160 ljósmyndir og 5 hreyfimyndir, sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, en tölvubúnaðurinn með myndefninu var haldlagður sama dag og maðurinn varð fyrir fólskulegri árás tveggja manna. Lögregla lagði upphaflega hald á tölvu mannsins í júlí í fyrra, eftir að tveir menn sem höfðu ráðist á hann tjáðu lögreglu að þeir hefðu gert það vegna þess að hann væri „barnaperri“. Maðurinn var hins vegar ekki handtekinn fyrr en í desember. Hann hafði tekið sér veikindaleyfi vegna árásarinnar í millitíðinni en snúið aftur til starfa nokkrum dögum áður en hann var handtekinn. Maðurinn hefur undanfarin ár starfað sem verkefnisstjóri á barnasviði frístundaheimilis fyrir börn og unglinga. Hann hefur verið í launuðu leyfi síðan málið kom upp. Daniel Arciszewski og Snorri Sturluson fengu í september í fyrra þriggja og tveggja og hálfs árs fangelsisdóma fyrir að ráðast inn til mannsins á heimili hans í Breiðholti og ræna hann, auk nokkurra smávægilegri brota. Tvímenningarnir bundu hann í stól, hótuðu honum líkamsmeiðingum og lífláti og neyddu hann til að millifæra á þá á fimmta hundrað þúsund. Þeir bundu hann á höndum með rafmagnssnúru ofan í baðkari, tróðu upp í hann tusku og límdu fyrir. Þeir héldu honum nauðugum í íbúðinni í sex klukkustundir og höfðu síðan ýmsar eigur hans á brott með sér.
Tengdar fréttir Barnaklám hjá starfsmanni frístundamiðstöðvar Rúmlega sextugur starfsmaður á frístundaheimili hefur verið ákærður fyrir vörslu barnakláms. Hann var sendur í leyfi í desember. Maðurinn var bundinn, keflaður og rændur fyrir ári. Ræningjarnir sögðu hann vera "barnaperra“. 21. júní 2013 07:00 Reykjavíkurborg lítur mál „barnaperra“ alvarlegum augum Á annað hundrað ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt fundust í tölvu rúmlega sextugs manns í desember. 21. júní 2013 12:18 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Barnaklám hjá starfsmanni frístundamiðstöðvar Rúmlega sextugur starfsmaður á frístundaheimili hefur verið ákærður fyrir vörslu barnakláms. Hann var sendur í leyfi í desember. Maðurinn var bundinn, keflaður og rændur fyrir ári. Ræningjarnir sögðu hann vera "barnaperra“. 21. júní 2013 07:00
Reykjavíkurborg lítur mál „barnaperra“ alvarlegum augum Á annað hundrað ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt fundust í tölvu rúmlega sextugs manns í desember. 21. júní 2013 12:18