Innlent

Amfetamín, járnkylfa og kannabis fannst við húsleit

Tveir ökumenn voru handteknir á Suðurnesjum um helgina vegna fíkniefnaaksturs. Annar þeirra ók eftir Reykjanesbraut, þegar lögregla stöðvaði för hans.

Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu að hann hafði neytt amfetamíns og kannabis. Að fengnum úrskurði héraðsdóms Reykjaness fór lögregla í húsleit á heimili ökumannsins. Þar fundust kannabisefni og amfetamín. Einnig járnkylfa, sem hann afsalaði sér til eyðingar.

Hinn ökumaðurinn var á ferð í Keflavík þegar hann var stöðvaður. Í bifreið hans voru tveir farþegar og viðurkenndi hann að hópurinn hefði verið að reykja kannabis fyrr um kvöldið. Sýnatökur staðfestu neyslu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×