Karlmenn vildu sussa niður í kerlingarflóni Ugla Egilsdóttir skrifar 9. nóvember 2013 09:00 Í Doktorsnámi Guðný Hallgrímsdóttir er núna í doktorsnámi þar sem hún einblínir á sögu alþýðukvenna á 18. og 19. öld.
Ævisaga alþýðukonunnar Guðrúnar Ketilsdóttur á 18. öld var flokkuð sem gamansaga af klámfengnu flóni en ekki ævisaga. Sjálfsævisaga hennar er líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu. Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu eftir Guðnýju Hallgrímsdóttur kemur út á næstu vikum. Bókin kemur út hjá Háskólaútgáfunni og er hluti af ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Bókin er rannsókn á ævi Guðrúnar Ketilsdóttur og byggir á sjálfsævisögu hennar sem er fimm blaðsíðna handskrifuð sjálfsævisaga, og er líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu. „Í fyrsta skipti sem ég las hana heillaðist ég af frásagnarmátanum. Málfar hennar var fegrað og ritskoðað þegar það kom út á prenti í fyrsta sinn árið 1929 þannig að frásögnin varð bitlausari en í upphaflega handritinu,“ segir Guðný, höfundur bókarinnar. Í þeirri prentútgáfu er sagan flokkuð sem gamansaga af klámfengnu flóni en ekki með ævisögum. „Í formála var sagt að það væri búið að lagfæra nokkur klúryrði í sögunni. Saga Guðrúnar lenti utangarðs í meðförum 20. aldar fræðimanna vegna þess að þegar kemur að því að flokka og varðveita sögu hennar þá er titli sögunnar umbreytt úr Ævisaga Guðrúnar Ketilsdóttir í Gunna suða sem 20. aldar menn telja að hún hafi verið uppnefnd, líklega vegna þess að hún talaði svo mikið, en ég finn engar heimildir um að hún hafi verið uppnefnd þetta. Svo flokka þeir hana sem þjóðleg fræði með draugasögum og sögum af skrímslum og álfum og göldrum, þannig að engum gat dottið í hug að þetta væri sjálfsævisaga alþýðukonu.“ Guðný telur að sagan hafi verið ritskoðuð vegna þess hvað Guðrún var hrein og bein í umræðu sinni um menn og málefni. „Þá voru það karlmenn sem vildu aðeins sussa niður í kerlingarflóni. Guðrún sagði opinskátt frá lífi sínu án þess að vera að skreyta eða fegra eigin sögu. Hún eignast ómögulegan eiginmann sem heldur framhjá henni og fer illa með hana. Hún talar um manninn sinn í frásögninni og segir að hann hafi legið í einhverri konu „eins og brókunum sínum“ vegna þess hversu oft hann hélt framhjá henni.“ Sagan af Guðrúnu kom upp í hendurnar á Guðnýju fyrir tilviljun. „Mér fannst skrítið hvað við vissum lítið um sögu kvenna frá þessum tíma. Ég var með aðstöðu í Reykjavíkurakademíunni og þar spurðist út að ég væri að leita að þessum heimildum. Þá fékk ég á einni viku þrjú eintök af sögu þessarar konu upp í hendurnar.“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira