Lætur drauma sína rætast Gunnar Leó Pálsson skrifar 16. nóvember 2013 12:30 Katrín Ósk Jóhannsdóttir, móðir og barnabókahöfundur, lætur drauma sína rætast. Fréttablaðið/Gva „
Þegar ég varð ólétt af seinni stráknum var vinur minn með áhyggjur af því að mínir draumar færu í ævilanga bið sökum þungunarinnar. Út frá því var ég staðráðin í að láta drauma mína rætast, vegna barnanna en ekki þrátt fyrir þau,“ segir hin 23 ára gamla Katrín Ósk Jóhannsdóttir, barnabókahöfundur og móðir, sem er að senda frá sér tvær barnabækur. Fyrsti draumur Katrínar var að verða rithöfundur og hefur hún nú skrifað tvær barnabækur sem bera annars vegar titilinn Karólína og týndu skórnir, og hins vegar Karólína og eggið. „Sagan varð til þegar ég var að segja eldri stráknum sögu fyrir svefninn, hann hafði bara svo gaman af henni að mig langaði að skrifa hana,“ útskýrir Katrín, sem á tvo stráka, annan fimm ára og hinn tveggja ára. „Þeir voru mínir helstu ráðgjafar þegar ég skrifaði sögurnar og hjálpuðu þeir mér mjög mikið,“ bætir Katrín við. Sagan fjallar um könguló sem heitir Karólína en hún fer alltaf í morgungöngu og lendir í alls kyns ævintýrum. „Í fyrri sögunni lendir Karólína í því að týna skónum sínum, en hún er auðvitað í átta skóm og lendir í alls kyns ævintýrum í leit sinni að skónum. Í seinni bókinni finnur hún egg í morgungöngunni sem hún ætlar sér að koma til skila.“ Báðar bækurnar eru einnig eins konar kennslubækur.Í fyrri bókinni er farið yfir litina, því Karólína er með átta fætur og eru allir skórnir hennar í sitt hvorum litnum. Í seinni sögunni kemur fyrir talnakennsla. „Í seinni bókinni finnur hún eitt egg, í garðinum sem hún býr í eru tvö tré og á hvoru tréi eru þrjár greinar, þannig að þarna eru tölurnar í öndvegi.Bækurnar eru hugsaðar fyrir yngstu börnin en þó gætu eldri börn haft gaman af sögunni. Hún er um tuttugu blaðsíður, gefin út af Óðinsauga og Jenny Rojas myndskreytir. „Hugmyndin er að gera þetta að lengri syrpu ef þetta gengur vel,“ bætir Katrín við en hún er farin að huga að þriðju bókinni. Bækurnar koma í verslanir 20. nóvember og einnig verður útgáfuhátíð haldin 1. desember í IÐU í Lækjargötu. „Það væri gaman, ef vel gengur, að vinna enn frekar með bækurnar, eins og að búa til þrauta- og/eða verkefnabók og einnig væri gaman að búa til app úr þessu,“ segir Katrín að lokum hress og kát. Hægt er að fylgjast með Karólínu könguló á netinu með því að smella hér.
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira