Þú færð stæltari rass og læri Ellý Ármanns skrifar 21. ágúst 2013 10:45 Myndir/Arnþór Birkisson
Hollywoodstjarnan Sherri Shepherd léttist um tugi kílóa eins og lesa má hér eftir að hún byrjaði að stunda zumba dans. Ester Júlía Olgeirsdóttir er vinsæll zumbakennari í World Class í Laugum og Spöng. Við spurðum hana út í þennan vinsæla dans eða öllu heldur íþrótt sem er vinsæl hér á landi og forvitnuðumst hvað iðkendur fá út úr því að dansa zumba.Mest grennandi líkamsrækt sem til er „Zumba er ein mest grennandi líkamsrækt sem til er. Þú getur brennt allt að 1000 hitaeiningum í einum zumbatíma og það er engin vitleysa. Zumbatímar eru misjafnir eftir kennurnum en ég legg mikla áherslu á í mínum tímum að hafa tímana kröftuga þannig að fólk taki virkilega vel á því og fái mikið út úr hverjum tíma," segir Ester. „Zumba fitness er dans með áherslu á suður ameríska tónlist. Dansanir eru til dæmis salsa, merenge, samba cumbia og reggaeton. En einnig tek ég diskó, rokk, kántrý og þá danstónlist sem er vinsæl hverju sinni."„Zumba losar heilinn um vellíðunar hormónið endorfín svo við förum í náttúrulega vímu," segir Ester.Fólk verður að koma og prófa „Það er svo margt sem mig langar að segja um zumba og margt sem ég get sagt en það er efni í heilt tímarit. Fólk verður bara að koma og prófa. Ef þér finnst gaman að dansa þá ábyrgist ég að þú munt elska zumba. Þessi hreyfing er frábær til að tóna líkamann, þú færð stæltari rass og læri, flottan kvið og handleggi og það styrkist allur likaminn. Það mun koma fólki á óvart hvað liðleikinn eykst og eins þolið. Blóðþrýstingur lækkar og síðast en ekki síst bætir zumba skapið og gerir þig hamingjusamari."Sporin sáraeinföld „Zumba snýst um gleði, frábæra tónlist og skemmtun. Sporin eru sáraeinföld og allir geta verið með jafnt byrjendur sem vanir. Fólki líður ekki eins og það sé í líkamsrækt í Zumba því það skemmta sér allir svo vel. Þetta er eins konar dulin líkamsrækt." „Ég segi oft að zumbamínútur eru miklu fljótari að líða en venjulegar mínútur og tíminn hreinlega flýgur áfram. Zumba er sannkallað partí og hefur ekki síst frábær áhrif á andann jafnt og líkamann því í zumba losar heilinn um vellíðunar hormónið endorfín svo við förum í náttúrulega vímu," útskýrir Ester.En að þér. Af hverju zumba fitness? „Ég elska að dansa og keppti í latíndönsum hér áður fyrr. Ég ætlaði mér alltaf að verða danskennari og byrjaði í því námi en hætti fljótlega þar sem ég var einstæð móðir á þeim tima og námið hentaði mér engan veginn þar sem kennslan fór aðallega fram á kvöldin og mikið um ferðir út á land. Svo þegar ég heyrði fyrst af zumba - vissi ég strax að þetta var eitthvað fyrir mig. Hér á ég heima og það má eiginlega segja að zumba eigi mig með húð og hári í dag," segir Ester.Opnir tímar í zumba „Ég kenni Zumba fitness í World Class Laugum á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 17:30 og í World Class Spöng á laugardögum á morgnana klukkan 10:00. Þetta eru allt opnir tímar og allir korthafar World Class geta því mætt í tímana sér að kostnaðarlausu. Einnig er World Class með opna zumbatima með öðrum kennurum í Kringlunni, Seltjarnarnesi og í Egilshöll þannig að það er hægt að dansa zumba út um allan bæ.Zumba fitness er dans með áherslu á suður ameríska tónlist:
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira