Lífið

Staðgengill Brian í Family Guy kynntur til sögunnar

Bjarki Ármannsson skrifar
Griffin-fjölskyldan (hundurinn Brian lengst til vinstri) þegar allt lék í lyndi.
Griffin-fjölskyldan (hundurinn Brian lengst til vinstri) þegar allt lék í lyndi.
Grínþátturinn sívinsæli Family Guy hefur kynnt til sögunnar nýjan hund á heimili Griffin-fjölskyldunnar, eftir að persónan Brian var óvænt drepinn í nýlegum þætti.

Staðgengillinn heitir Vinny og í meðfylgjandi myndskeiði má sjá að honum hefur strax verið skeytt inn í upphafsatriði þáttanna. Leikarinn Tony Sirico, sem er þekktastur fyrir að túlka Paulie í sjónvarpsþáttunum The Soprano's, mun tala fyrir þessa nýju persónu.

Áhugavert verður að sjá hvernig aðdáendur þáttanna munu taka þessum nýja meðlimi, en þeir voru margir hverjir mjög ósáttir að sjá á eftir Brian. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.