Lífið

Kim og Kanye gifta sig í Versölum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kim Kardashian og Kanye West plana nú brúðkaup sitt en þau hafa í hyggju að láta gefa sig saman í Versölum í Frakklandi samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

"Kanye hefur aldrei gengið í hjónaband og hann vill stórt brúðkaup," segir heimildarmaður tímaritsins og bætir við að ekkert verði til sparað á stóra deginum.

Flottir foreldrar.
Verður brúðkaupið þá í takt við bónorð Kanye en hann bað sinnar heittelskuðu á tónleikum í San Francisco í október. Saman á parið dótturina North West sem kom í heiminn í júní á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.