Lífið

Á þriðja hundruð manns hjá Tolla

Davíð Kristján Guðmundsson, Sölvi Tryggvason og Arnar Þorvarðarson.
Davíð Kristján Guðmundsson, Sölvi Tryggvason og Arnar Þorvarðarson.
Á þriðja hundrað manns skemmtu sér vel í opnun myndlistarmannsins Tolla á vinnustofu hans í gærkvöld.

Um er að ræða sýningu á fjölda olíumálverka sem bera með sér óð til friðar og fegurðar þar sem landslagið og birtan leika aðalhlutverkið. Tolli, sem er einn þekktasti myndlistamaður Íslands, fagnaði við sama tækifæri útgáfu Kærleikshandbókarinnar.

Bára Hólmgeirsdóttir, Anna kristín Þorsteinsdóttir og Sigrún Hólmgeirsdóttir.
Hljómsveitin Samsara skemmti gestum og léttar veitingar voru í boði. Þá var minjamarkaður helgra muna og handverks  frá Tibet og Nepal í boði Kailash. 

Bjarni Sigurðsson, Greta Engilsbertsdóttir og Hjörtur Sólrúnarson.
„Þetta var skemmtileg kvöldstund, ást, gleði og ljós á aðventunni,“ segir Tolli ánægður með opnunina. 

Helga Kailash og Gunný Gunnlaugsdóttir, eiginkona Tolla
Ingibjörg Óskarsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Laila Awad





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.