Lífið

Sopranosstjarna leikur í auglýsingu á Íslandi

Steven Van Zandt í viðtali.
Steven Van Zandt í viðtali.
Bandaríski leikarinn, tónlistarmaðurinn og útvarpsmaðurinn Steven Van Zandt er staddur hér á landi og kíkti í smá spjall til Orra á X-inu.

Van Zandt er trúlega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Silvio Dante í Sopranos og einnig er hann búinn að spila á gítar með Bruce Springsteen and the E Street Band í tæp 40 ár.

Van Zandt er staddur hér á landi en hann fer með hlutverk í stórri auglýsingu sem mikil leynd hvílir yfir.

„Það er mjög fallegt hér og mig langar að koma aftur til að eyða meiri tíma hér. Við erum hér í fimm daga og vinnum sextán tíma á dag,“ segir Van Zandt meðal annars í viðtalinu við Orra sem heyra má í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Steven Van Zandt verður í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.