Lífið

Pamela Anderson orðin dökkhærð

Kynbomban Pamela Anderson er búin að vera dugleg við að breyta um hárgreiðslur uppá síðkastið.

Seint í október klippti hún sig stutt og núna í byrjun desember litaði hún ljósu lokkana brúna.

Dökkhærð díva.
Pamela tjáði sig um klippinguna hjá Ellen DeGeneres fyrir stuttu.

"Mér fannst hárið mitt hafa átt sitt eigið líf. Mig langaði að ljúka því lífi og byrja uppá nýtt. Mér fannst þetta líka góð hugmynd fyrir maraþonið, sem reyndist rétt," segir Pamela en hún hljóp maraþon í New York þann 5. nóvember síðastliðinn.

Ljósu lokkarnir heyra sögunni til.
Lífið á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.