Lífið

Ein af aðalpersónum Family Guy þáttanna deyr

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikil tíðindi komu fram í nýjasta þætti af bandarísku þáttaseríunni Family Guy en í þættinum verður ein af aðal persónunum fyrir bíl og lætur lífið.

„Okkur fannst þetta góð leið fyrir karakterinn til að hætta í þáttunum og frekar fyndið í raun,“ sagði Steve Callaghan, aðal framleiðandi þáttanna, í viðtali við sjónvarpstöðina E.

Eftir að þátturinn var sýndur í Bandaríkjunum logaði hinn svokallaði Twitter-heimur og var töluverð reiði í aðdáendum þáttanna.

„Aðdáendur okkar eiga að geta treyst okkur og þetta mun ekki hafa nein áhrif á gæði þáttanna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.