Lífið

27 ára aldursmunur

Raunveruleikastjörnumamman Kris Jenner er byrjuð með Bachelorette-stjörnunni Ben Flajnik.

Kris, sem er 58 ára, er enn tæknilega gift Bruce Jenner, 63ja ára, en þau standa nú í skilnaði. Kris kynntist Ben, 31 árs, þegar hann var gestur í spjallþætti hennar, Kris, í sumar.

„Þau byrjuðu að hanga saman og rómantíkin blómstraði strax,“ segir heimildarmaður tímaritsins Us Weekly.

Bruce og Kris.
Kris er móðir raunveruleikasystranna Kourtney, Kim og Khloe Kardashian en óvíst er hvað þeim stöllum finnst um nýja kærasta móður sinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.