Lífið

Útgáfugleði - Pabbinn eftir Bjarna Hauk

Bjarni Haukur Þórsson gaf í gær út bókina Pabbinn. Í því tilefni bauð hann til útgáfugleði í Eymundsson á Skólavörðustíg.
Bjarni Haukur Þórsson gaf í gær út bókina Pabbinn. Í því tilefni bauð hann til útgáfugleði í Eymundsson á Skólavörðustíg.
Útgáfu var fagnað í Eymundsson, Skólavörðustíg í gær og var þar margt um manninn.

Bjarni Haukur las kafla úr bókinni, Hildur Hermóðsdóttir frá Sölku hélt tölu og Helgi Björnsson og gítarleikari skemmtu gestum en Helgi söng meðal annars lagið Geta pabbar ekki grátið?

Pabbinn er fyrsta bók Bjarna Hauks og byggir höfundur hana á einleik sínum Pabbanum sem hefur verið á fjölunum hér og erlendis síðustu ár en leikritið hefur verið sýnt í yfir tuttugu löndum.

Í bókinni lýsir hann föðurhlutverkinu og öllu sem því viðkemur.

Arnar Grant og fjölskylda
Ólafur Egilsson og Bjarni Haukur
Sigrún Edda Björnsdóttir og Helgi Björnsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.