Lífið

Þitt atkvæði skiptir máli - kjósum Djúpið

Ellý Ármanns skrifar
Auðvelt að kjósa. Allir geta kosið – og um leið átt möguleika á að vinna ferð til Berlínar þegar Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í byrjun desember.
Auðvelt að kjósa. Allir geta kosið – og um leið átt möguleika á að vinna ferð til Berlínar þegar Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í byrjun desember.
Nú er komið að lesendum Lífsins að taka þátt í kjöri um bestu evrópsku mynd ársins – People’s Choice Awards og kjósa Djúpið sem er ein þeirra ellefu kvikmynda sem hægt er að kjósa um.

Ekki spillir fyrir að þátttakendur eiga möguleika á að vinna ferð til Berlínar í byrjun desember og vera viðstaddir afhendingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár.

Hér er slóðin – þar sem hægt er að kjósa til 31.október næstkomandi.

Djúpið er frá árinu 2012 og er handritið skrifað af Baltasar og Jóni Atla Jónassyni. Myndin er innblásin af þeim einstaka atburði þegar Guðlaugur Friðþórsson náði einn áhafnarmeðlima að bjarga lífi sínu eftir að Hellisey VE503 hvolfdi og sökk seint í mars 1984.

Djúpið var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Torontó í september 2012 þar sem hún hlaut lofsamlega dóma gagnrýnenda og var ein af níu kvikmyndum sem komust í gegnum niðurskurð dómnefndar Óskarsverðlaunanna í janúar sem besta erlenda myndin en hlaut þó ekki tilnefningu. Þá var Djúpið valin mynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni í febrúar.

Djúpið kemur út á DVD 31.október næstkomandi.

Kjóstu hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.