Innlent

Þyrlan enn biluð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
TF GNÁ á flugi.
TF GNÁ á flugi. Mynd/ Vilhelm.
Ekki tókst að koma TF GNÁ, þyrlu Landhelgisgæslunnar, til Reykjavíkur í gærkvöld. Þyrlan var í leið í útkall á þriðja tímanum í gær þegar öxull brotnaði við gírkassa hennar. Tafarlaust varð að lenda þyrlunni vestan við Höfn í Hornafirði. Að sögn flugstjóra gekk lending vel og eru allir heilir á húfi. Ingibjörg, björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði, var þá kallað út og sótti það um klukkan fjögur í gær veikan skipverja um borð í fiskiskip sem staðsett var um 10 sjómílur frá landi. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni verður þyrlan skoðuð nánar í dag og reynt að gera við hana.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×