Lífið

Það hefur enginn gott af heilu kílói af súkkulaði

Ellý Ármanns skrifar
Eiinkaþjálfararnir Freyja Sigurðardóttir fitnessdrottning með meiru og Jóhanna Þórarinsdóttir norðurlandameistari í bekkpressu vita hvað ber að varast í súkkulaði-páska-átinu. Þjálfararnir ráðleggja fólki að hreyfa sig samhliða súkkulaðiátinu yfir hátíðarnar.

Jóhanna Þórarinsdóttir
Ekki taka heila viku í sukk



"Mikilvægt er að eiga góðan páskadag og njóta þess að vera með fjölskyldunni en varast að taka heila viku í sukk. Þetta er langt frî og það er hægt að elda hollan og góðan mat fram að páskum eins og til dæmis að grilla gott kjöt með rétta meðlætinu," segir Jóhanna sem heldur úti vefnum www.fitnessform.is og bætir við:

"Fyrst og fremst er mikilvægt að hreyfa sig og nota góða veðrið til útivistar."

Freyja Sigurðardóttir.
Bara muna að borða hollan morgunmat 

"Það er hefð að allir fá sér páskaegg á páskadag og úrvalið er orðið svakalegt. Maður fær valkvíða en auðvitað kaupi ég Freyju páskaegg enda eru þau best. Draumaegg eða Rísegg. Freyja stendur fyrir sínu," segir Freyja í léttum tón.

"En að öllu gamni slepptu mæli ég með að fólk kaupi ekki of stór egg. Það hefur enginn gott af heilu kílói af súkkulaði og nammi hvorki við fullorðna fólkið og hvað þá börnin okkar."

Allt er gott í hófi

"Bara muna að borða hollan morgunmat og drekka stórt glas af vatni áður en það er lagt í að opna súkkulaði-gersemin og fá sér smá súkkulaði bita og njóta. Svo væri toppurinn að fara út að skokka eða gera eithvað sem kemur pumpunni af stað - þá líður manni svo vel. Allt er gott í hófi. Gleðilega páska og hafið það gott yfir páska hátíðina," segir Freyja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.