Lífið

Hárið hefur styrkst og orðið heilbrigðara

Ellý Ármanns skrifar
Sólveig Pálmadóttir hársnyrtimeistari og viðskiptalögfræðingur á Selfossi upplýsir okkur hvaða hár- og snyrtivörur hún notar.

Moroccan olía

"Ég nota Moroccan olíuna í blautt hárið og svo ber ég það aftur í þegar það er orðið þurrt, hvort sem ég hef leyft því að þorna í bylgjunum sínum eða blásið það slétt. Þar sem ég er með strípur og lit í síða hárinu mínu þá hugsa ég mjög vel um það, kaupi til dæmis aldrei hárvörur annarsstaðar en á stofum. Eftir að ég byrjaði að nota Moroccan olíuna þá hefur það bæði styrkst og orðið heilbrigðara. Ég á nokkrar vinkonur sem bera olíuna á andlitið líka ef það er þurrt."

Nee Make – up Milano

"Litaða dagkremið frá Nee er mitt uppáhald. Ef mig langar að vera extra fín þá set ég á mig létta umferð af Nee kökumeikinu. En Nee förðunarvörurnar sem eru tiltölulega nýlegar hér á landi eru virkilega flottar og góðar. Ég gæti til dæmis ekki verið án glossins frá þeim og á því nokkur stykki, eitt í veskinu, annað í bílnum og þriðja í jakkanum."

L'Oreal Double Extension

"Maskarinn sem ég enda alltaf á að versla aftur eftir að hafa prófað aðrar tegundir er svarti tvöfaldi L'Oreal Double Extension. Ég vil hafa augnahárin mín falleg því oft er það eina förðunin sem ég set á mig yfir daginn, auk dagkrems. Fyrst ber ég næringuna á augnahárin, hvíta hlutann og læt hana þorna vel áður en ég set ég maskarann á. Magnið fer eftir því hvað ég er að fara að gera."

ZoPure

"Bestu serum dropar sem ég hef notað á andlitið. Fyrir svefninn nudda ég þeim vel inn í húðina. Þessir lúxusdropar eru hrein dásemd."

Signature of Nature

"Ljómunarmeðferðin sem ég versla af og til á Heima Spa barnum í Signature of Nature versluninni í Smáralind. Þá djúphreinsa ég húðina, hún fær góða næringu, fyllist af raka og á eftir ljómar hún. Það besta er að hún er ódýr og það fylgja henni góðar leiðbeiningar."

Sólveig Pálmadóttir.

Tengdar fréttir

Loksins fann ég rétta farðann

Jóhanna Þórarinsdóttir ÍAK einkaþjálfari og norðurlandameistari í bekkpressu leggur mikla áherslu á náttúrulegt útlit. Hún upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar.

Fann loksins augnskugga sem endist

Söng- og leikkonan Íris Kristinsdóttir sem eignaðist tvíburadrengi í apríl í fyrra hefur nóg að gera þegar kemur að uppeldinu. Íris sem er glæsileg kona upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Notar maskara sem þykkir og lengir augnhárin

"Ég á í raun frekar lítið af snyrtivörum og nota þær hóflega. Ég er ákaflega vandlát á snyrtivörur og hef eytt drjúgum tíma, vangaveltum og aur í að finna þessar vörur sem ég mæli hér með," segir Steinunn Vala hönnuður...

Ómissandi snyrtivörur Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir ástríðukokkur með meiru hefur í nægu að snúast þessa dagana en hún heldur úti fróðlegri matarsíðu PureEbba.com samhliða því að skrifa matreiðsluækur á sinn einstaka máta. Lífið spurði Ebbu hvaða fimm snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Snyrtivörurnar sem Svala Björgvins notar

Söngkonan Svala Björgvins sem er búsett í Bandaríkjunum er stórglæsileg kona með áberandi fallega húð. Hún upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Eftir allt sukkið í desember þarf maður næringu fyrir húðina

"Eftir allt sukkið í desember í konfekti, mat, drykk og svefninn á hvolfi þarf maður næringu fyrir húðina. Ég ákvað að taka smá treat á þetta núna til að fríska mig aðeins við á nýju ári," segir Eva Dögg eigandi Tiska.is...

Virkar eins og hrukkustraujárn

"Ég er auðvitað snyrtivörusjúk og með hrukkufóbíu á háu stigi og mér finnst hrikalega gaman að nota snyrtivörur," segir Margrét.

Snilld fyrir mömmur sem verða stundum þreyttar

Manúela Ósk Harðardóttir sem heldur meðal annars úti tískublogginu M-x-k.com upplýsir okkur um fimm vörur sem hún getur ekki verið án þegar kemur að húð- og hárumhirðu.

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Augnhárabrettir ómissandi til að skerpa augun

María Builien Jónsdóttir nemi og eigandi ICE import ehf upplýsti okkur um fimm snyrtivörur sem hún getur ekki verið án. Hún leggur áherslu á góð næringarrík krem á sama tíma og hún viðurkennir fúslega að hún verslar sér ódýra eye-liner í næstu matvörubúð.

Ég er áskrifandi að þessari snilld

"Allir ættu að eiga þetta bronzing gel. Ég er áskrifandi að þessari snilld. Mjög fallegur litur og eðlilegur. Sleppa að meika sig dags daglega og skella þessu á sig, maskara og glossi og taramm..."

Húðin verður frískari og mjúk sem silki

"Ég á endalaust mikið af augnskuggum og varalitum. Um leið og ég uppgötvaði snyrtivörur var í raun ekki aftur snúið," segir Marín Manda Magnúsdóttir...

Ég elska varaliti og nota þá daglega

María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×