Óafsakanleg hegðun hjá Suarez Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. apríl 2013 19:59
Luis Suarez, leikmaður Liverpool, beit Branislav Ivanovic, varnarmann Chelsea, í höndina í 2-2 jafntefli Liverpool og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, vildi ekki tjá sig um atvikið strax eftir leik. Síðan hefur hann sagt hegðun framherjans óafsakanlega. „Þetta er félag sem hefur siðferði og góð gildi í hávegum," sagði Rodgers í viðtali við BBC eftir leikinn. Um atvikið sagðist hann þurfa að skoða það. „Félagið í heild sinni mun taka atvikið til skoðunar. Það er klárlega engin stærri en félagið, hvorki leikmaður né knattspyrnustjóri," sagði Rodgers.Suarez fagnar jöfnunarmarki sínu.Nordicphotos/GettyNorður-Írinn minnti á að þjálfarateymið og leikmenn Liverpool væru alltaf fulltrúar félagsins innan sem utan vallar. „En nú er ekki tíminn til þess að tjá sig um atvikið. Ég mun alltaf vera heiðarlegur í ummælum mínum um leikmenn mína og verja þá þegar ég get. En með fulltri virðingu fyrir ykkur þá verð ég að fá að skoða atvikið fyrst," sagði Rodgers við fréttamenn sem gengu á stjórann.Atvikið umdeilda.Nordicphotos/AFP„Ég mun alltaf verja leikmenn þegar ég tel þá hafa rétt fyrir sér. Ef þeir hafa rangt fyrir sér læt ég þá vita. Það hefur þegar komið fyrir í tilfelli Luis á þessari leiktíð," sagði Rodgers. Rafa Benitez, sem sneri aftur á sinn gamla heimavöll, sagðist ekki hafa séð atvikið. Hann sagðist ekki hafa rætt um atvikið við leikmenn sína því menn væru enn að svekkja sig á jöfnunarmarkinu undir lokin. Markið skoraði Luis Suarez. Mörkin úr leiknum og atvikið umdeilda má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.Uppfært klukkan 20.10: „Eftir að hafa horft á myndband af atvikinu og rætt við Luis er ljóst að hegðun hans er óafsakanleg og ég hef gert honum grein fyrir því," segir í yfirlýsingu frá Brendan Rodgers vegna atviksins.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Fleiri fréttir Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Sjá meira