Lífið

Miðar á Monty Python seldust upp á 44 sekúndum

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Fimmmenningarnir komu síðast fram saman árið 1998 á grínhátíð í Aspen.
Fimmmenningarnir komu síðast fram saman árið 1998 á grínhátíð í Aspen. mynd/getty
Miðar á endurkomusýningu breska grínhópsins Monty Python seldust upp á 44 sekúndum, en þeir fóru í sölu í morgun.

Í kjölfarið hefur fjórum aukasýningum verið bætt við, en hópurinn mun koma saman í fyrsta skipti í fimmtán ár í O2-höllinni þann 1. júlí á næsta ári. Aukasýningarnar verða þann 2., 3., 4. og 5. júlí.

Eftir að uppselt varð á fyrstu sýninguna mátti finna miða til sölu á brasksíðum fyrir allt að 3.000 pund, eða tæplega 600 þúsund krónur.

„Ég er mjög spenntur,“ sagði Terry Jones, einn meðlima Monty Python, í samtali við BBC í síðustu viku og vonast hann til þess að þeir muni græða vel á endurkomunni. „Ég er að vonast til þess að geta borgað húsnæðislánið mitt.“

John Cleese, Eric Idle, Terry Gilliam og Michael Palin, auk Jones, munu allir taka þátt, en sjötti meðlimurinn, Graham Chapman, lést úr krabbameini árið 1989.

Fimmmenningarnir komu síðast fram saman árið 1998 á grínhátíð í Aspen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.