Ekki lengur allt í drasli hjá þingmanni Pírata Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 1. nóvember 2013 16:15 Margrét og Heiðar skömmuðu Helga fyrir sóðaskapinn. mynd/skjár einn
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, fékk heimsókn frá sjónvarpsþættinum Allt í drasli árið 2005. Í þáttunum, sem voru á dagskrá Skjás Eins, heimsóttu þau Heiðar Jónsson og Margrét Sigfúsdóttir illa hirt heimili og veittu leiðsögn sína í tiltekt og þrifum. Íbúð Helga var svo sannarlega öll í drasli, en í samtali við Vísi segist hann hafa snúið við blaðinu. „Móðir mín vann við þessa þætti,“ segir Helgi, en hún bað hann að taka þátt í þættinum og gaf honum þau fyrirmæli að taka alls ekki til vikurnar fyrir þáttinn. „Verandi mömmustrákur þá hlýddi ég bara og hélt meira að segja tvö partý og tók ekki til eftir þau.“Það var allt á hvolfi heima hjá Helga Hrafni þegar þau Heiðar og Margrét bar að garði.mynd/skjár einnHelgi segist þó ekki hafa verið neinn snyrtipinni á þessum tíma, en ástandið eins og það birtist í þættinum hafi verið mun verra en það var venjulega. Hann segir að þátttaka sín í þættinum hafi ekki skemmt fyrir sér, en í nokkrar vikur að þættinum liðnum hafi hann tekið eftir því að fólk horfði meira á sig. Helgi bjó árum saman í íbúðinni en er nýfluttur úr henni og segir að á nýja staðnum sé allt glimrandi fínt. Hann segir að þrátt fyrir góðar ráðleggingar frá Heiðari og Margréti hafi hann lært það að mestu leyti sjálfur að halda hreinu. „Það mikilvægasta við þrif eru smáatriði. Og þau vefjast oft fyrir ungum karlmönnum.“Búskapur Helga var dæmigerður karlabúskapur, að mati Heiðars snyrtis.mynd/skjár einnDæmigerður karlabúskapur „Ég fattaði ekki að þetta væri sami maðurinn,“ segir Heiðar Jónsson, betur þekktur sem Heiðar snyrtir, þegar blaðamaður Vísis bað hann að rifja upp heimsóknina til þingmannsins. „Ég man eftir þessu. Þetta var svona dæmigerður karlabúskapur. Við Margrét vorum pínulítið hissa á að hann væri „síngúl“, hann var svo helvíti huggulegur og afskaplega frambærilegur. Við veltum því fyrir okkur hvað skyldi vera að gaurnum? Þær hefðu átt að vera í biðröðum. Ég held ég sé ekkert hissa á að hann sé þingmaður í dag.“Helgi segir það mikilvægasta við þrif vera smáatriðin.myns/skjár einnHeiðar segir að í íbúðinni hafi verið „skemmtileg og karakterísk kaos“ og að þátturinn hafi verið skemmtilegur. Hann fagnar því að Helgi sé orðinn snyrtilegur í dag en segir að það sé allur gangur á því hvernig þátttakendur stóðu sig eftir heimsóknina. „Sumir urðu algjörir snyrtipinnar en aðrir voru í sama veseni. Fyrst hann er kominn á þing þá hlýtur hann að hafa hafa snúið við blaðinu.“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira