Páfagaukurinn ljúfur mótleikari 16. janúar 2012 12:00 Einar Aðalsteinsson og páfagaukurinn Joshua leika báðir í Gulleyjunni sem frumsýnd verður í lok janúar. Þeir eru miklir mátar líkt og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Einar Aðalsteinsson leikari fer með aðalhlutverkið í Gulleyjunni sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið 27. janúar næstkomandi. Einar leikur þar á móti tónlistarmanninum Birni Jörundi Friðbjörnssyni og páfagauknum Joshua. Einar leikur Jim Hawkins, ungan pilt sem vinnur á krá og lendir í miklum ævintýrum þar sem hann kynnist meðal annars sjóræningjanum Langa-Jóni Silfur sem Björn Jörundur leikur. Inntur eftir því hvernig sé að leika á móti Birni Jörundi og Joshua segir Einar það gaman enda séu þeir báðir mikil ljúfmenni. „Þeir eru báðir mjög ljúfir og rólegir og það er ofsalega gaman að vinna með þeim. Munurinn liggur kannski helst í því að fuglinn hefur minni orðaforða en Björn," segir Einar glettnislega. Joshua er sjö ára gamall páfugl sem flutti með eiganda sínum frá Dublin til Íslands. Líkt og aðrir leikarar Gulleyjunnar mun Joshua búa á Akureyri meðan á sýningum stendur og vonar Einar til þess að hann og fuglinn geti orðið herbergisfélagar. „Hann verður bara einn af okkur og ég vona svo sannarlega að hann fái að búa hjá mér enda erum við miklir mátar. Hann er líka svo skemmtilegur og flottur á litinn, það er nánast eins og hann sé ekki ekta, hann er það fallegur," segir Einar. Líkt og áður hefur komið fram verður verkið frumsýnt í lok mánaðarins og að söng Einars hafa æfingar gengið vonum framar þrátt fyrir nokkur eymsli vegna skylminga. „Við höfum æft alveg síðan í nóvember og erum orðin mjög spennt fyrir frumsýningunni. Það er mikill hasar í leikritinu og ég hef fengið nokkrar skrámur við skylmingaæfingar, en ekkert meira en það." - sm
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Sjá meira