Leggur lokahönd á spennusögu 17. september 2012 08:00 Iðinn við kolann Jón Atli Jónasson hefur í nógu að snúast. Hann skrifaði handritið að Frosti og Djúpinu auk þess að vera leikskáld Borgarleikhússins. fréttablaðið/stefán
Kvikmyndin Djúpið verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í þessum mánuði og er leikskáldið Jón Atli Jónasson handritshöfundur myndarinnar. Hann skrifaði einnig handritið að Frosti, sem frumsýnd var 7. september síðastliðinn, og er leikskáld Borgarleikhússins. Inntur eftir því hvort þetta hafi verið sérstaklega annasamt ár svarar Jón Atli neitandi. "Nei, það tekur langan tíma að gera bíómynd á borð við Djúpið og ég lauk þeirri vinnu fyrir nokkuð löngu síðan. Balti gerði aðra kvikmynd í millitíðinni og því hefur þetta tekið sinn tíma. Allir sem að henni standa eru þó ánægðir með hvað vandað var til verka," segir Jón Atli og kveðst spenntur fyrir frumsýningu Djúpsins. "Ég hef séð myndina á vinnslustigum hennar og er orðinn mjög spenntur að sjá hana í bíósal." Jón Atli er einnig að leggja lokahönd á spennusögu sem hann hyggst gefa út fyrir jól. Hann segir löngun ekki hafa ráðið því að hann settist við skriftir á spennusögu heldur hafi efniviðurinn valið formið. "Ég vann óvart Gaddakylfuna í fyrra og ákvað í kjölfarið að rannsaka þetta form betur. Þessi saga er ekki unnin út frá vinningssögunni en er í sama anda og fjallar um hrylling hversdagsins." Þetta er ekki fyrsta bók Jóns Atla því árið 2001 sendi hann frá sér smásagnasafnið Brotinn taktur og fyrsta skáldsaga hans Í frostinu kom út árið 2005. Hann hefur þó helst vakið athygli fyrir leikverk sín og vann meðal annars Grímuverðlaunin fyrir leikritið Brim árið 2004. Þegar Jón Atli er að lokum spurður út í framtíðarverkefni sín er hann svarafár. "Það er ýmislegt í vinnslu, meira get ég ekki sagt." - sm
Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Sjá meira