Kúreki norðursins fær viðurkenningar 15. september 2012 13:00 Kóngurinn Hallbjörn segist stoltur af viðurkenningunum. fréttablaðið/jón sigurður „
Þetta kemur mér verulega mikið á óvart því mér hefði aldrei nokkurn tíma dottið þetta í hug,“ segir tónlistarmaðurinn Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins og konungurinn í Kántrýbæ. Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi og bandarísku samtökin Country Music Association hafa ákveðið að veita Hallbirni viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans til kántrýtónlistar. Afhendingin fer fram í Kántrýbæ á Skagaströnd næstkomandi þriðjudag. Sendiherra Bandaríkjanna, Luis E. Arreaga, veitir Hallbirni viðurkenningu frá Country Music Association og einnig viðurkenningu frá sendiráðinu, en í báðum tilfellum er um að ræða staðfestingu á miklu og góðu framlagi tónlistarmannsins til kántrýtónlistar á Íslandi. „Með eldmóði sínum og sköpunargáfu hefur Hallbjörn sameinað bandarískan tónlistarstíl íslenskri menningu og skapað einstaka tegund af íslenskri kántrýtónlist,“ segir í viðurkenningu sendiráðsins. „Ég er ákaflega stoltur og þakklátur fyrir þennan skilning sem mér er sýndur á mikilvægi þess að kynna kántrýtónlistina á Íslandi,“ segir Hallbjörn, sem á ferlinum gaf út fjöldann allan af kántrýplötum. Hann kveðst hættur tónlistarsköpun en starfrækir enn útvarpsstöðina Útvarp Kántrýbæ sem fagnar tuttugu ára afmæli sínu þann 14. nóvember næstkomandi. „Ég hef ekki hugsað mér að halda sérstaklega upp á afmælið en ég hlakka til að veita þessum viðurkenningum móttöku,“ segir Hallbjörn.-kg
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira