Elti ungar stjörnur um heiminn 14. september 2012 09:00 Rólað Ragnhildur Steinunn rólar með Nönnu, söngkonu Of Monsters and Men, á æskuslóðum hennar í Garði í fyrsta þætti nýrrar seríu Ísþjóðarinnar.
Önnur sería sjónvarpsþátta Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Ísþjóðarinnar, hefur göngu sína á sunnudaginn. Að þessu sinni flakkaði Ragnhildur Steinunn heimshorna á milli til að eltast við unga Íslendinga sem eru að gera það gott. Í fyrsta þætti nýju seríunnar hittir Ragnhildur Steinunn krakkana í hljómsveitinni Of Monsters and Men sem hafa heldur betur slegið í gegn á heimsvísu. Ragnhildur fékk að slást í för með sveitinni er þau voru á tónleikaferðalagi um Bretland og einnig heimsótti hún söngvarana Nönnu og Ragga á æskuslóðum þeirra. „Við vorum viðstödd fyrstu tónleika sveitarinnar í Bretlandi. Þar náði ég tali af nokkrum aðdáendum sem eru á öllum aldri," segir Ragnhildur sem skemmti sér vel með sveitinni. „Hljómsveitarmeðlimir eru allt mjög ólíkar týpur, jarðbundnir og skemmtilegir krakkar." Fyrsta sería Ísþjóðarinnar mæltist vel fyrir og kemur meðal annars fyrir sjónir finnskra áhorfenda á sjónvarpstöðinni FST þar sem Ísþjóðin verður sýnd á næstunni. Ragnhildur fullyrðir einnig að aðrar norrænar stöðvar hafi sýnt þáttunum mikinn áhuga. Í nýju seríunni fer Ragnhildur ekki bara í tónleikaferðalag því hún hélt til Mónakó í sumar þar sem hún heimsótti snjóbrettakappann Halldór Helgason sem lifir þar sældarlífi á milli þess sem hann keppir á stórmótum um allan heim. Einnig fá áhorfendur að kynnast leikkonunni ungu Heru Hilmarsdóttur sem leikur hlutverk í myndinni Anna Karenina með stórleikurunum Jude Law og Keiru Knightley en Ragnhildur hitti Heru á tökustað í Wales þar sem hún leikur í sjónvarpsþáttum á vegum BBC. Ísþjóðin er sýnd á sunnudögum á Ríkissjónvarpinu klukkan 19.40.-áp
Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Sjá meira