Vil helst ekta breskt suddaveður Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 11. ágúst 2012 10:00 Kári Steinn Karlsson mun hlaupa um götur Lundúna á morgun þegar maraþon karla fer fram á lokadegi Ólympíuleikanna. Mynd/Valli
Á morgun er lokakeppnisdagur Ólympíuleikanna í London og eins og venja er verður þá keppt í maraþonhlaupi karla, þeirri sögufrægu keppnisgrein. Kári Steinn Karlsson verður á meðal hlauparanna sem munu þeysast um stræti Lundúna í fyrramálið. Hlaupið er nákvæmlega 42 kílómetrar og 195 metrar sem samsvarar þeirri vegalengd sem gríski hermaðurinn Filippídes mun hafa hlaupið fyrir rétt um 2500 árum síðan. Þá hljóp hann frá borginni Maraþon til Aþenu til að flytja þær fréttir að Grikkir hefðu haft betur í orrustu þeirra við Persa. Líkaminn tók vel við hvíldinni„Þetta er grein sem allir þekkja og á góða tengingu við sögu Ólympíuleikanna. Óneitanlega er gaman að fá að vera hluti af því," sagði Kári Steinn í samtali við Fréttablaðið. „Þess fyrir utan er sá hópur hlaupara sem hefur glímt við maraþon sístækkandi og mjög margir sem finna samsvörun með manni. Hlaupaíþróttin hefur stækkað mjög á undanförnum árum en fyrir örfáum árum vissu fáir hvað þætti góður tími í maraþonhlaupi og 10 km hlaupi." Kári Steinn hefur þurft að bíða lengi eftir sinni grein á Ólympíuleikunum en hann hefur þó eytt drjúgum tíma í æfingabúðum í Bournemouth, fjarri erli ólympíuþorpsins. „Það er langt síðan ég kom hingað út en ég var búinn að stilla mig inn á þetta og því hefur biðin ekki verið erfið. Það var gott að fara til Bournemouth því þar gat ég einbeitt mér algjörlega að undirbúningnum." Hann segist ánægður með hvernig æfingar hafi gengið. „Ég hef ekki verið að reyna mikið á mig síðustu vikurnar enda verið að trappa mig niður eftir þungar æfingar fram að því. Það er alltaf spurning hvernig líkaminn bregst við slíkum breytingum en hann hefur verið að taka hvíldinni mjög vel. Ég er því orðinn mjög spenntur fyrir hlaupinu," segir hann. Ætla bara að kýla á þaðÞótt ótrúlega megi virðast hefur Kári Steinn aðeins tvívegis áður hlaupið heilt maraþon. Fyrst í Berlín í fyrra en þá náði hann ólympíulágmarkinu og bætti Íslandsmetið. Hann tók svo „æfingamaraþon", eins og hann kallaði það, á Ítalíu í marsbyrjun. „Ég efast um að það séu margir hér sem eru að hlaupa maraþon í aðeins þriðja skiptið. Þetta er mikil reynslugrein og hún er grimm að því leyti að maður þarf að hitta á góðan dag þegar að hlaupinu kemur – þá þarf allt að smella. Til þess þarf maður reynslu og er ég með þeim reynsluminni í hópnum. Ég læt það þó ekki hafa áhrif á mig og ætla bara að kýla á það." Íslandsmet Kára Steins er 2:17,12 klst. og bæting á morgun væri afar góður árangur hjá honum. Það spilar þó margt inn í, eins og veðurfar. „Ég ætla samt ekki að stressa mig á veðrinu, enda stjórna ég því ekki. Það getur verið varasamt að hlaupa í meira en 30 gráðu hita en eftir því sem ég best veit er ólíklegt að það verði svo heitt. Ef það verður mjög hlýtt þarf ég að passa mig á því að drekka vel, sérstaklega á meðan á hlaupinu stendur," segir hann. „En best væri auðvitað að fá ekta breskt veður – 15 gráðu hita, smá rigningu og golu," bætir hann við brosandi. Hlaupið hefst klukkan 11 að staðartíma sem er heldur seint að mati Kára Steins. „Það hefði verið eðlilegri tími að byrja klukkan 9. Þetta þýðir að við erum að koma í mark um eittleytið sem er í kringum heitasta tíma dagsins. Ef það verður steikjandi hiti verður mjög erfitt að taka síðustu kílómetrana." Dýragarður mannkynsinsKári Steinn hefur nú verið í ólympíuþorpinu í nokkra daga eftir að hafa komið til baka frá Bournemouth. Hann segir þó maraþonhlaupara frá Íslandi ekki vekja sérstaka athygli. „Nei, ég fæ engin sérstök viðbrögð. Þetta er hálfgerður dýragarður mannkynsins þarna inni og miklar öfgar í allar áttir. Allir íþróttamennirnir hafa lagt gríðarlega mikið á sig og eru allir öfgafullir á sínu sviði. Þeim finnst ekkert svakalega merkilegt að hlaupa maraþon."
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Enski boltinn Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Snorri Dagur í úrslit á EM Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Bulls veðja á fyrrum lærisvein Baldurs Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Spila um Forsetabikarinn á HM Fyrirliði Brentford að ganga til liðs við Arsenal Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Sjáðu Íslandsmetin falla og fagnaðarlætin í lauginni Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Flagg fer til Dallas Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Reynir við áttunda heimsmeistaratitil sinn Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Næstum því allt gekk upp hjá íslenska liðinu Sjá meira