Búningahönnuður Batman tekur Íþróttaálfinn í gegn 14. mars 2012 14:00 Búningahönnuður Batman hefur tekið að sér að uppfæra búning Íþróttaálfsins fyrir þriðju þáttaröð Latabæjar. Tekin hafa verið mót af líkama Magnúsar Scheving fyrir nýja búninginn. „
Okkur langaði að uppfæra búninginn og gera hann meira spennandi með því að bæta við tækjum og tólum," segir Hrefna Björk Sverrisdóttir, verkefnastjóri Latabæjar. Undirbúningur fyrir tökur á þriðju þáttaröð Latabæjar stendur nú yfir og munu þó nokkrar skemmtilegar nýjungar líta dagsins ljós í þáttunum. Búningur Íþróttaálfsins fær meðal annars útlitsyfirhalningu og við hann munu bætast ýmis spennandi tæki og tól. Bandaríska fyrirtækið Ironhead Studio sér um vinnuna við búninginn, en það er á meðal færustu fyrirtækja í búningahönnun í dag. Fyrirtækið er í eigu búningasmiðsins Jose Fernandez sem hefur meðal annars skapað búningana fyrir Batman myndirnar, X-Men, Fantastic Four, Hellboy, Planet of the Apes, Alien, Thor og Death Becomes Her svo fátt eitt sé nefnt. „Við höfðum samband við Jose og honum fannst verkefnið spennandi því hann hafði meðal annars aldrei unnið við barnaefni áður," segir Hrefna. „Það kom okkur líka skemmtilega á óvart hversu hrifinn hann var af upprunalega búningi Íþróttaálfsins, honum fannst hönnunin mjög góð og allt útlit þáttarins flott." Hrefna segir nýjan bakpoka bætast við búning íþróttaálfsins ásamt ýmsu öðru. „Úlnliðsböndin fá einnig skemmtilega viðbót sem gera Íþróttaálfinn aðeins hasarhetjulegri," útskýrir hún. Magnús Scheving, skapari Latabæjar, fer með hlutverk Íþróttaálfsins og flaug hann út til Los Angeles í síðustu viku þar sem tekin voru af honum mót og myndir svo hægt væri að hefjast handa við gerð nýja búningsins. Að sögn Hrefnu Bjarkar mun nýr og betri Íþróttaálfur koma fyrir sjónir almennings í byrjun næsta árs þegar nýja þáttaröðin fer í loftið. Búningur Íþróttaálfsins verður þó ekki eina nýjungin í þáttunum og má sem dæmi nefna að ný leikkona fer með hlutverk Sollu stirðu í þáttunum auk þess sem nýr leikari mun bætast við hópinn sem fyrir er. sara@frettabladid.is
Tengdar fréttir Mitt framlag Mér er stundum legið á hálsi fyrir að sjá ekki heildarmyndina. Og það réttilega. Gefum okkur að ég kæmist í tæri við óskabrunn. Áður en ég myndi eftir vágestum á borð við örbirgð, sjúkdóma og styrjaldir væri ég líklega búinn að sólunda óskunum í eitthvað fáfengilegt á borð við að fólk hætti að kalla kjúkling kjúlla eða að plebbadrykkjum á borð við Pepsi Max yrði útrýmt. 7. september 2007 00:01 Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Innipúkinn snýr aftur í Austurbæjarbíó og nú fitnar á fjósbitanum Tónlist Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira
Mitt framlag Mér er stundum legið á hálsi fyrir að sjá ekki heildarmyndina. Og það réttilega. Gefum okkur að ég kæmist í tæri við óskabrunn. Áður en ég myndi eftir vágestum á borð við örbirgð, sjúkdóma og styrjaldir væri ég líklega búinn að sólunda óskunum í eitthvað fáfengilegt á borð við að fólk hætti að kalla kjúkling kjúlla eða að plebbadrykkjum á borð við Pepsi Max yrði útrýmt. 7. september 2007 00:01