Bakþankar

Mitt framlag

Mér er stundum legið á hálsi fyrir að sjá ekki heildarmyndina. Og það réttilega. Gefum okkur að ég kæmist í tæri við óskabrunn. Áður en ég myndi eftir vágestum á borð við örbirgð, sjúkdóma og styrjaldir væri ég líklega búinn að sólunda óskunum í eitthvað fáfengilegt á borð við að fólk hætti að kalla kjúkling kjúlla eða að plebbadrykkjum á borð við Pepsi Max yrði útrýmt. Þetta er eiginlega það eina í heiminum sem truflar mig að einhverju ráði. Með öðrum orðum hugsa ég ekki sérlega stórt.

Helstu afleiðingar lítilfjörlegra pælinga eru skortur á ástríðu - kolunum sem kynda hugsjónirnar - og birtist aðallega í tómlæti gagn­vart „stóru málunum". Ég hef lík­lega sterkari skoðanir á hvítu galla­buxunum sem ég sá Egil Ólafs­son einu sinni í á Laugaveginum en á hlýnun jarðar. Við þetta ástand verður vitaskuld ekki lengur unað. Það er ekki lengur töff að vera töff og standa á sama um allt og alla. Það eina sem blífur nú til dags er að láta málin sig varða, fá nóg af þessu öllu saman og steyta hnefa í mótskæla­skyni, helst gegn einhverju merki­legra en Pepsi Max.

Ég er sem sagt í leit að ástríðu - hugsjón til að helga mig og berjast fyrir. Sem er heilmikil skuldbinding og ekkert til að flana að. Byrja kannski á að taka þátt í vitundarvakningu eða þjóðarátaki, til dæmis skógrækt, og vinn mig smátt og smátt upp í froðufellandi grænmetis­ætu sem slettir lífrænu skyri á alþingismenn. Umhverfismál eru heppilegur upphafspunktur, víðfeðmur málaflokkur sem er mikið í umræðunni og auðvelt að flétta við aðra þætti daglegs lífs, til dæmis samgöngur, sem eru í brennidepli þessa dagana.

Ég hef nokkuð skýra afstöðu gagn­vart bæði umferðarteppu og slysum: ég er á móti þeim. Ég hef því ákveðið að leggja mitt af mörkum í þágu umferðaröryggis og umhverfis­verndar og fengið mér reiðhjól. Með þessu móti ek ég ekki á neinn og bjarga ábyggilega lífi fjölda leikskólabarna sem að öðrum kosti myndu tærast upp í svifryki. Ég ætla reyndar ekki að losa mig við bílinn alveg strax. Ég lofa aftur á móti að nota hann bara í ítrustu neyð og ætla alltaf að hjóla í vinnuna. Nema auðvitað þegar það er rigning og mótvindur.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×