Lífið

Framleiðir magnaða hálsklúta

Söngkonan Svala Björgvinsdóttir saumar litríka hálskúta og selur á heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord. Klútarnir hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum sveitarinnar.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir saumar litríka hálskúta og selur á heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord. Klútarnir hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum sveitarinnar. Mynd/steed lord
Söngkonunni Svölu Björgvinsdóttur er margt til lista lagt og hóf hún nýverið að sauma litríka hálsklúta sem hægt er að kaupa í gegnum heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord. Svala er þó enginn nýgræðingur þegar kemur að saumaskap því hún hefur saumað eigin föt allt frá því hún var í gagnfræðaskóla.

Klútana kaupir Svala notaða og handsaumar síðan kögur á kantana til að lífga upp á þá. Klútarnir eru í anda fatastíls Svölu sjálfrar, litríkir og fjörlegir og hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum hljómsveitarinnar.

„Ég saumaði nokkra klúta fyrir sjálfa mig og vini mína árið 2007 og fékk í kjölfarið pantanir frá fleiri aðilum. Ég ákvað svo bara að fara að sauma fleiri og selja svo að allir sem vilja geti eignast klút," segir Svala sem viðurkenndi í viðtali við Fréttablaðið sumarið 2010 að hún hefði saumað flíkur á sjálfa sig allt frá því hún var í gagnfræðaskóla og því ættu henni að vera hæg heimatökin við framleiðslu klútanna.

Svala kveðst hafa verið hrifin af kögri á flíkum allt frá barnsaldri og á sjálf fjóra klúta sem hún segist nota mikið. „Strákarnir eiga ekki ennþá klúta, ætli ég verði ekki að fara sauma á þá bráðum."

Svala þykir einstaklega smekkleg og var meðal annars valin ein af best klæddu konum landsins árin 2011 og 2010. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á hönnun og hafa meðlimir Steed Lord meðal annars hannað litla fatalínu fyrir H&M árið 2007.

„Við hönnuðum líka Steed Lord boli fyrir sænska fatafyrirtækið WeSC og stefnum á að hanna Steed Lord heyrnartól og fylgihluti fyrir þau í framtíðinni. Tónlist, kvikmyndagerð, ljósmyndun og hönnun eru okkar ástríður og í Steed Lord getum við gert það allt undir einu nafni sem er bara frábært."

Klútana má nálgast á slóðinni steedlord.bigcartel.com. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.