Framleiðir magnaða hálsklúta 30. janúar 2012 20:00 Söngkonan Svala Björgvinsdóttir saumar litríka hálskúta og selur á heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord. Klútarnir hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum sveitarinnar. Mynd/steed lord
Söngkonunni Svölu Björgvinsdóttur er margt til lista lagt og hóf hún nýverið að sauma litríka hálsklúta sem hægt er að kaupa í gegnum heimasíðu hljómsveitarinnar Steed Lord. Svala er þó enginn nýgræðingur þegar kemur að saumaskap því hún hefur saumað eigin föt allt frá því hún var í gagnfræðaskóla. Klútana kaupir Svala notaða og handsaumar síðan kögur á kantana til að lífga upp á þá. Klútarnir eru í anda fatastíls Svölu sjálfrar, litríkir og fjörlegir og hafa fallið vel í kramið hjá aðdáendum hljómsveitarinnar. „Ég saumaði nokkra klúta fyrir sjálfa mig og vini mína árið 2007 og fékk í kjölfarið pantanir frá fleiri aðilum. Ég ákvað svo bara að fara að sauma fleiri og selja svo að allir sem vilja geti eignast klút," segir Svala sem viðurkenndi í viðtali við Fréttablaðið sumarið 2010 að hún hefði saumað flíkur á sjálfa sig allt frá því hún var í gagnfræðaskóla og því ættu henni að vera hæg heimatökin við framleiðslu klútanna. Svala kveðst hafa verið hrifin af kögri á flíkum allt frá barnsaldri og á sjálf fjóra klúta sem hún segist nota mikið. „Strákarnir eiga ekki ennþá klúta, ætli ég verði ekki að fara sauma á þá bráðum." Svala þykir einstaklega smekkleg og var meðal annars valin ein af best klæddu konum landsins árin 2011 og 2010. Hún segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á hönnun og hafa meðlimir Steed Lord meðal annars hannað litla fatalínu fyrir H&M árið 2007. „Við hönnuðum líka Steed Lord boli fyrir sænska fatafyrirtækið WeSC og stefnum á að hanna Steed Lord heyrnartól og fylgihluti fyrir þau í framtíðinni. Tónlist, kvikmyndagerð, ljósmyndun og hönnun eru okkar ástríður og í Steed Lord getum við gert það allt undir einu nafni sem er bara frábært." Klútana má nálgast á slóðinni steedlord.bigcartel.com. - sm
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira