Margar hljómsveitir hafa þurft að breyta nafni sínu eftir að kom í ljós að einhver annar var á undan þeim með nafnið. Skemmst er að minnast deilu hinna hollensku og íslensku Maus. Hin íslenska Maus á einkaréttinn á nafninu í Evrópu og því er hin hollenska nauðbeygð til að skipta um sitt nafn. Fréttablaðið skoðaði tíu aðrar hljómsveitir sem hafa lent í svipuðum vandræðum og hin hollenska Maus.
Amína Amiina
Hljómsveitin Amína breytti árið 2006 nafni sínu í Amiina. Margir rugluðust á sveitinni og söngkonunni Aminu frá Túnis sem lenti í öðru sæti í Eurovision 1991 með lagið Le dernier qui a parlé sem hún söng fyrir hönd Frakklands.
The Bangs The Bangles
Kvennasveitin hét upphaflega The Bangs en þegar í ljós kom að önnur hljómsveit bar sama nafn varð hún að breyta til.
Blink Blink 182
Bandaríska pönkbandið hét einfaldlega Blink en eftir að írsk hljómsveit með sama nafn hótaði lögsókn var ákveðið að bæta tölunni 182 við.
The Chicago Transit Authority Chicago
Hljómsveitin hét The Chicago Transit Authority þegar fyrsta platan hennar kom út. Eftir það höfðaði borgin Chicago mál gegn sveitinni vegna þess að hún hét það sama og deild almenningssamgangna. Í staðinn skírði hljómsveitin sig í höfuðið á borginni sjálfri.
The Dust Brothers The Chemical Brothers
Bandaríska danshljómsveitin var skírð í höfuðið á upptökudúóinu The Dust Brothers. Eftir að sveitinni var hótað lögsókn var nafninu breytt í The Chemical Brothers, sem vísar til lags hennar Chemical Beats.
The Tea Set Pink Floyd
Breska hljómsveitin þurfti að breyta nafninu sínu eftir að í ljós kom að önnur hljómsveit hét The Tea Set. Í staðinn tók hún upp nafnið The Pink Floyd Sound eftir blústónlistarmönnunum Pink Anderson og Floyd Council. Aðdáendur sveitarinnar töluðu alltaf um Pink Floyd, sem varð opinbert nafn hennar.
Silmarillion Marillion
Breska rokksveitin var upphaflega skírð í höfuðið á bók sem fjallaði um verk J.R.R. Tolkien, The Silmarillion. Til að koma í veg fyrir lagaflækjur var nafninu breytt í Marillion.
Mighty Joe Young Stone Temple Pilots
Þegar í ljós kom að blústónlistarmaður kallaði sig Mighty Joe Young var nafninu breytt í Shirley Temple"s Pussy. Það breyttist svo í Stereo Temple Pirates en varð á endanum Stone Temple Pilots.
Suede The London Suede
Breska hljómsveitin varð að breyta nafninu sínu fyrir Bandaríkjamarkað í The London Suede vegna þess að bandarískur hótelsöngvari átti einkaréttinn á því og höfðaði mál gegn Bret Anderson og félögum.
Verve The Verve
Nafni bresku popparanna var breytt í The Verve vegna þess að fyrir í tónlistarbransanum var djassútgáfan Verve Records.
