Lífið

Páfagaukurinn ljúfur mótleikari

Einar Aðalsteinsson og páfagaukurinn Joshua leika báðir í Gulleyjunni sem frumsýnd verður í lok janúar. Þeir eru miklir mátar líkt og sjá má.
Einar Aðalsteinsson og páfagaukurinn Joshua leika báðir í Gulleyjunni sem frumsýnd verður í lok janúar. Þeir eru miklir mátar líkt og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Einar Aðalsteinsson leikari fer með aðalhlutverkið í Gulleyjunni sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið 27. janúar næstkomandi. Einar leikur þar á móti tónlistarmanninum Birni Jörundi Friðbjörnssyni og páfagauknum Joshua.

Einar leikur Jim Hawkins, ungan pilt sem vinnur á krá og lendir í miklum ævintýrum þar sem hann kynnist meðal annars sjóræningjanum Langa-Jóni Silfur sem Björn Jörundur leikur.

Inntur eftir því hvernig sé að leika á móti Birni Jörundi og Joshua segir Einar það gaman enda séu þeir báðir mikil ljúfmenni. „Þeir eru báðir mjög ljúfir og rólegir og það er ofsalega gaman að vinna með þeim. Munurinn liggur kannski helst í því að fuglinn hefur minni orðaforða en Björn," segir Einar glettnislega.

Joshua er sjö ára gamall páfugl sem flutti með eiganda sínum frá Dublin til Íslands. Líkt og aðrir leikarar Gulleyjunnar mun Joshua búa á Akureyri meðan á sýningum stendur og vonar Einar til þess að hann og fuglinn geti orðið herbergisfélagar.

„Hann verður bara einn af okkur og ég vona svo sannarlega að hann fái að búa hjá mér enda erum við miklir mátar. Hann er líka svo skemmtilegur og flottur á litinn, það er nánast eins og hann sé ekki ekta, hann er það fallegur," segir Einar.

Líkt og áður hefur komið fram verður verkið frumsýnt í lok mánaðarins og að söng Einars hafa æfingar gengið vonum framar þrátt fyrir nokkur eymsli vegna skylminga. „Við höfum æft alveg síðan í nóvember og erum orðin mjög spennt fyrir frumsýningunni. Það er mikill hasar í leikritinu og ég hef fengið nokkrar skrámur við skylmingaæfingar, en ekkert meira en það." - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.