Valin úr 5.000 stuttmyndum 16. janúar 2012 10:30 Helgi og félagar eru á leiðinni til Utah í Bandaríkjunum þar sem Slamdance-kvikmyndahátíðin fer fram. Leikstjórinn Christopher Nolan er á meðal þeirra sem voru uppgötvaðir þar. „
Það verða 28 myndir frá Bandaríkjunum eða Kanada og bara ein önnur mynd frá Evrópu. Þannig að við ætlum einhvern veginn að vera fulltrúar Evrópu. Segjum það bara," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Jóhannsson. Stuttmynd Helga og Halldórs Ragnars Halldórssonar, Þegar kanínur fljúga, verður sýnd á Slamdance-kvikmyndahátíðinni í Utah í Bandaríkjunum, sem hefst í næstu viku. Á meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni eru Gunnar Hansson, Anna Svava Knútsdóttir og Jakob van Oosterhout. Fleiri en 5.000 stuttmyndir voru sendar inn og er myndin ein af 30 sem var valin. Það er til mikils að vinna fyrir Helga og Halldór, en sigurvegari stuttmyndaflokksins kemst í forval fyrir Óskarsverðlaunin.Slamdance-hátíðin var sett á fót árið 1995 þegar nokkrir kvikmyndagerðarmenn vildu lýsa frati á Sundance-hátíðina. Í dag er Slamdance hins vegar haldin samhliða Sundance, í sama bæ á sama tíma. Fjölmargir kvikmyndagerðarmenn hafa verið uppgötvaðir á Slamdance.Plakat myndarinnar.Þeirra á meðal er Christopher Nolan, en hann vann til verðlauna á Slamdance fyrir fyrstu kvikmynd sína Following. „Sundance er ein stærsta kvikmyndahátíð heims og þetta er allt haldið í litlum skíðabæ í Utah," segir Helgi. „Við munum búa í húsi með sextán öðrum kvikmyndagerðarmönnum. Þannig að þetta verður örugglega frekar spes." -afb
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira