Innlent

Vill fella niður tolla af innfluttum ostum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhannes Gunnarsson er formaður Neytendasamtakanna
Jóhannes Gunnarsson er formaður Neytendasamtakanna
Stjórnvöld ættu að fella niður tolla af innfluttum ostum sem eru ekki framleiddir hér á landi. Slíkt væri fyrsta skrefið í átt að aukinni samkeppni á íslenskum búvörumarkaði, segir í nýjum pistli á vef Neytendasamtakanna í dag. Ástæða umfjöllunarinnar eru breyting á reglugerð þar sem dregið er úr innflutningshömlum á landbúnaðarvörur en greint var frá reglugerðinni á þriðjudag.

Neytendasamtökin segjast fagna breytingunni sem felst í því að nú er ferðamönnum heimilt að flytja til landsins allt að einu kílói af ógerilsneyddum osti og allt að þremur kílóum af hráu kjöti sé það frosið og prófað fyrir salmónellu. Ekki þarf að greiða aðflutningsgjöld vegna þessa né leggja fram vottorð vegna innflutnings á soðnum kjötvörum eins og áður var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×