Lífið

Komin með nóg af megrunarkjaftæði

myndir/cover media
Söngkonan Christina Aguilera ræðir opinskátt um eigin líkamsþyngd í Bollboard tímaritinu. Hún hefur fengið sig fullsadda af því að vera horaða stelpan sem hún var þegar hún kynnti plötuna sína Stripped fyrir tíu árum. Hún hefur fengið nóg af pressunni sem hún hefur þurft að þola frá útgefendum sínum varðandi þyngd sína í gegnum árin.

"Það var haldinn krísufundur um þyngd mína," útskýrir Christina en útgefendur hennar virðast einblína á útlit hennar með sölutölur í huga. Platan hennar Lotus er væntanleg í verslanir í nóvember en Christina ætlar aldeilis ekki að taka þátt í þessum skrípaleik sem gengur út á brenglaða ímynd.

Á fundinum var því haldið fram að plötur Christinu myndu mögulega seljast betur ef hún færi í stífa megrun og létti sig en í dag er hún tíu árum eldri og viturri og lætur svona pressu ekki hafa áhrif á sig.

"Þetta er minn líkami og enginn á mig," sagði Christina jafnframt.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Christinu yfirgefa veitingastað í Beverly Hills ásamt unnusta sínum eftir að hún fagnaði nýrri smáskífu sem ber heitið Your Body.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.