Sport

Arnór: Markmiðið að vinna riðilinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
„Það var æðislegt að vinna Svíana. Það var það sem við vildum og nú erum við vonandi búnir að tryggja okkur úrslitaleik gegn Frökkunum um sigur í riðlinum," sagði Arnór. „Það er frábært. Það er okkar markmið. Við erum komnir í flotta stöðu og það væri æðislegt að vinna þennan riðil. Það er okkar markmið."

„Ég var ánægður með sóknarleikinn. Við enduðum á að skora 32 mörk en ég held samt að það hafi verið varnarleikurinn sem lagði grunninn að sigrinum. Við fengum kannski nokkur auðveld mörk á okkur en við mættum í kvöld Kim Andersson, einum besta handboltamanni heims, og náðum að halda aftur af honum."

Aron Pálmarsson skoraði níu mörk í kvöld og var öflugur. „Hann er frábær viðbót við liðið og verður alltaf mikilvægari og mikilvægari leikmaður. Hann er frábær handboltamaður og árangur hans í síðustu tveimur leikjum mjög góður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×