Sala miða á Vetrarólympíuleikana í Sochi til skoðunar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. júní 2012 19:30 Belginn Jacques Rogge er forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar (IOC). Nordicphotos/Getty
Alþjóða Ólympíunefndin (IOC) hefur til skoðunar miðasölukerfið fyrir vetrarólympíuleikana sem fram fara í Sochi í Rússlandi 2014. Heimildarmaður Reuters-fréttastofunnar innan raða IOC segir að nefndin velti fyrir sér ýmsum leiðum til að standa að miðasölunni. Töluverðrar gagnrýni hefur gætt vegna framkvæmdar miðasölunnar á Ólympíuleikana í London í sumar þar sem fjölmargir miðar hafa verið seldir á uppsprengdu verði á svörtum markaði. IOC sendi frá sér yfirlýsingu um helgina þar sem fram kom að rannsókn stæði yfir vegna umfjöllunar breska dagblaðsins Sunday Times á dögunum. Þar kom fram að Ólympíusambönd og þeir aðilar sem rétt höfðu á endursölu miðanna hefðu brotið reglur er vörðuðu miðasölu á leikana í London. Samkvæmt umfjöllun blaðsins voru fjölmörg sambönd og aðilar sem ýmist keyptu eða seldu miða utan þess svæðis sem aðilarnir hafði rétt til afskipta á. Bæði voru miðar seldir á uppsprengdu verði og seldir áfram til aðila sem áfamseldu miðana án tilskyldra réttinda. „IOC tekur ásakanirnar afar alvarlega. Komi í ljós að reglur hafi verið brotnar verður brugðist við því," segir í yfirlýsingunni frá nefndinni. „Ólympíusamböndin eru sjálfstæð sambönd en fáist staðfest að reglur hafi verið brotnar mun IOC ekki hika við að grípa til hörðustu mögulegu refsingar," segir ennfremur í yfirlýsingunni.
Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira