Jo Nesbø áritaði óvænt í Máli & menningu 18. september 2012 10:30 Norski metsöluhöfundurinn Jo Nesbö áritaði óvænt bækur sínar í Máli og menningu um helgina. Nordicphotos/getty „
Þetta var óneitanlega mjög skemmtileg og óvænt uppákoma hér í búðinni," segir Kristján Freyr Halldórsson, verslunarstjóri í bókabúð Máls og menningar við Laugaveg en þangað kom norski metsöluhöfundurinn Jo Nesbø í óvænta heimsókn um helgina. Jo Nesbø rak inn nefið í Mál og menningu á laugardagskvöldið. Afgreiðslustúlkunum á vakt grunaði ekki að þarna væri sjálfur höfundurinn á ferðinni en tóku eftir því að Nesbø gekk brosandi um verslunina og virti íslensku deildina fyrir sér. „Hann kom til þeirra áður en hann gekk út, kynnti sig og þakkaði fyrir hversu vel bókum hans væru gerð skil í búðinni. Því næst sagðist hann hafa áritað nokkur eintök," segir Kristján, sem hafði strax samband við forlag Nesbø hér á landi, Uppheima, en þar könnuðust menn ekki við ferðir höfundarins hér á landi og töldu því ólíklegt að um Nesbø væri að ræða. „Ég setti mig því í rannsóknarlögreglugírinn til að ganga úr skugga um hver í ósköpunum hefði krotað í bækurnar undir fölsku flaggi. Eftir að hafa skoðað öryggismyndavélar og borið áritunina í bókunum saman við mynd af áritun Nesbø sem ég fann á netinu, erum við ekki í vafa um að þetta var hinn eini sanni Nesbø," segir Kristján sem hefur stillt árituðu eintökunum sérstaklega upp í búðinni á meðan forlagið reynir að hafa uppi á metsöluhöfundinum. „Þetta er skemmtilega saga en starfsmenn mínir höfðu orð á því að Nesbø hefði verið hinn viðkunnanlegasti og mjög svo alþýðulegur náungi." - áp
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Sjá meira