Lífið

Sér eftir tímanum með Jennifer Lopez

Leikarinn Ben Affleck hefur lengi vel verið í sviðsljósinu og er enn þrátt fyrir misgóðan kvikmyndaleik. Hann segist ekki eiga ánægjulegar minningar frá sambandi sínu við söngkonuna Jennifer Lopez árið 2003 og vill helst ekki rifja upp árið þeirra saman sem hann kallar "annus horribilis" eða hræðilega árið.

Þá vísar Ben til þess að þau fengu nánast aldrei frið fyrir slúðurpressunni og ljósmyndurum sem eltu þau hvert einasta fótmál. Hann gerir þó einnig grín að tímanum sem hann var með Jennifer og kýs frekar að rifja upp hvernig Barack Obama gekk í stjórnmálum.

Í dag er Ben giftur leikkonunni Jennifer Garner og saman eiga þau þrjú börn.

Í meðfylgjandi tónlistarmyndbandi Jenny from the Block birtist Ben einmitt með Jennifer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.