Kemur ríðandi á tónleikastað 18. september 2012 11:51 Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna ætla að mæta ríðandi á tónleikana sína í salnum á laugardag. fréttablaðið/arnþór birkisson "
Hugmyndin er að koma ríðandi frá Reykjavík og ætlar Erpur Eyvindarson, Vestfirðingurinn knái, að taka á móti okkur við bæjarmörkin og fylgja okkur síðasta spölinn. Hann hyggst leiða mig í sannleikann um að Kópavogur sé alvöru borg og ég vona bara að það gangi upp hjá honum," segir söngvarinn Helgi Björnsson um fyrirhugaða tónleika sína og Reiðmanna vindanna í Salnum á laugardag. Helgi hyggst koma ríðandi til tónleikastaðarins og segist hann hafa fengið lánaða hesta undir Reiðmennina einnig. Hestarnir munu svo bíða fyrir utan húsið á meðan á tónleikunum stendur. "Hestasveinar munu sjá um reiðskjótana á meðan," segir Helgi sem kemur ríðandi á hesti sínum, Dagfara. Söngvarinn vinsæli hefur verið önnum kafinn síðustu mánuði og lék síðast í mynd Benedikts Erlingssonar, Hross. Hann segir verkefnið hafa verið stórskemmtilegt og hefur mikla trú á myndinni. "Ég held að þetta verði snilldarverk enda er handritið ærlega skemmtilegt." Næst mun Helgi leika í nýrri kvikmynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Kalt vor, og hefjast tökur á myndinni á Flateyri næsta vor. "Ég fór líka með nokkuð stórt hlutverk í kvikmyndinni XL og sjónvarpsþáttunum Pressu, þannig að það er ýmislegt í gangi." Tónleikar Helga og Reiðmanna vindanna hefjast klukkan 19 og hægt er að nálgast miða á Midi.is. - sm
Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Fleiri fréttir Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Sjá meira