Bakar kökur og hjólar með þær til viðskiptavina sinna 21. janúar 2012 13:00 Ben Chompers sendist með vörur sínar í þar til gerðum kössum sem eru festir á reiðhjól hans. Verið er að leggja lokahönd á kassana. fréttablaðið/stefán „
Þetta eru mjög amerískar uppskriftir. Ég held að þær henti íslenskum bragðlaukum vel,“ segir Bandaríkjamaðurinn Ben Chompers. Hann hefur stofnað bakaríið Hveiti og smjör sem sérhæfir sig í kökum og alls kyns eftirréttum. Hið óvenjulega er að Chompers sendist með vörurnar sjálfur um Reykjavík á sérhönnuðu reiðhjóli og bankar upp á bæði hjá fyrirtækjum og í heimahúsum. Hægt er að gerast áskrifandi á heimasíðunni hans og borga átta þúsund króna mánaðargjald gegn því að Chompers sendist einu sinni í viku með mismunandi tegundir gómsætra eftirrétta, átta skammta, sem áskrifendurnir geta skoðað fyrirfram á heimasíðu hans og pantað. Chompers er í samstarfi við kaffihúsið Litla bóndabæinn við Laugaveg 41 og notar eldhúsið þar við baksturinn. Í staðinn er hægt að kaupa bakkelsið hans á kaffihúsinu. Chompers bakar hnetusmjörsbökur, jarðarberjakökur, súkkulaðismákökur, döðlukökur með karamellukremi og margt fleira. Hann starfrækir einnig veisluþjónustu sem hægt er að panta hvenær sem er og Björk Guðmundsdóttir er einn þeirra viðskiptavina sem hafa hrifist af kökunum hans. Bakaríið er umhverfisvænt að því leytinu að Chompers notast við hjól en ekki bíl, kökunum er pakkað inn í umhverfisvænan pappír og þær eru geymdar í sérhönnuðum neongrænum reiðhjólakössum. Hinn þrítugi Chompers starfaði hjá tölvuleikjafyrirtækinu CCP ásamt íslenskum eiginmanni sínum. Eftir að hafa flutt til Þýskalands í eitt ár sneru þeir aftur til Íslands. Chompers fékk vinnu við þrívíddarmyndina Hetjur Valhallar – Þór en að verkinu loknu var honum sagt upp ásamt sjö öðrum starfsmönnum. Þá fékk hann hugmyndina að bakaríinu. „Ég fékk innblástur frá konu sem gerir svipaða hluti í New York, nema með ís, og fyrirtækið heitir Milk Made. Eitt af því sem rak mig af stað var einnig hversu íslensku bakaríin eru lík.“ Chompers stundar víkingaþrek af miklum krafti hjá Mjölni og segir það fara vel saman með öllu bakkelsinu. „Ég bjó til auglýsingu með einum kennaranum sem er með rosalega magavöðva. Hann heldur á einni kökunni og þar stendur: „Einu sinni í viku getur ekki skaðað“. Hugmyndin er að jafnvel hann með nánast enga líkamsfitu getur borðað kökur og smákökur.“ Nánari upplýsingar um bakaríið má finna á síðunni Hveitiogsmjör.com.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Sjá meira