Sport

Íslensku keppendurnir mættir til London

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Keppendur Íslands á Ólympíumóti fatlaðra eru mættir í Ólympíuþorpið í London. Hópurinn flaug út árla morguns á laugardag og fékk góðar móttökur við komuna í þorpið.

Setningarathöfnin fer fram á miðvikudagskvöldið en Helgi Sveinsson er þess heiðurs aðnjótandi að bera fána Íslands. Auk Helga keppa Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir, Kolbrún Alda Stefánsdóttir og Jón Margeir Sverrisson fyrir Íslands hönd.

Helgi og Matthildur keppa í frjálsum íþróttum en Matthildur er fyrsti kvenkeppandi Íslands í frjálsum íþróttum á Ólympíumóti. Kolbrún og Jón Margeir keppa í sundi. Allir keppendur Íslands keppa í þremur greinum en hér fyrir neðan má sjá dagskrá íslensku keppendanna á mótinu.

Sund undanrásir /úrslit

31. ágúst: 10:07/18:31 Jón Margeir Sverrisson - 100 bak S14

31. ágúst: 10:18/18:38 Kolbrún Alda Stefánsdóttir - 100 bak S14

2. september: 08:54/16:48 Jón Margeir Sverrisson - 200 skrið S14

2. september: 09:07/16:56 Kolbrún Alda Stefánsdóttir - 200 skrið S14

6. september: 09:34/17:24 Jón Margeir Sverrisson - 100 bringa S14

6. september: 09:32/17:31 Kolbrún Alda Stefánsdóttir - 100 bringa S14

Frjálsíþróttir undanrásir /úrslit

31. ágúst: 09:08 Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir - langstökk F37

31. ágúst: 18:20 Helgi Sveinsson - langstökk F42

2. september: 10:05/19:11 Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir - 100 m T37

5. september: 09:49/19:42 Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir - 200 m T37

7. september: 09:12/20:00 Helgi Sveinsson - 100 m T42

7. september: 10:33 Helgi Sveinsson - spjótkast F42




Fleiri fréttir

Sjá meira


×