Fær bætur fyrir pyntingar í Kabúl 14. desember 2012 07:00 Hann barðist árum saman fyrir því að mál hans yrði tekið fyrir hjá dómstólum í Bandaríkjunum og Evrópuríkjum. NORDICPHOTOS/AFP
Þýskum leigubílstjóra var rænt í Makedóníu árið 2003, hann fluttur til Afganistans með leynd og pyntaður þar í fangelsi bandarísku leyniþjónustunnar. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur nú dæmt Makedóníustjórn til að greiða honum skaðabætur. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að þýski bílasalinn Khaled el Masri hefði þolað bæði pyntingar og aðrar misþyrmingar af hálfu bandarísku leyniþjónustunnar CIA í Afganistan á árinu 2003. El Masri segir að sér hafi verið rænt í Makedóníu árið 2003. Þaðan hafi hann verið fluttur með leynd til Afganistans þar sem hann sætti harkalegum yfirheyrslum mánuðum saman í fangelsi í útjaðri höfuðborgarinnar Kabúl, skammt frá alþjóðaflugvellinum þar í borg. Fangelsið var á vegum bandarísku leyniþjónustunnar og jafnan nefnt „Saltgryfjan“. Hann fullyrðir að Bandaríkjamenn hafi á endanum áttað sig á því að enginn fótur væri fyrir grun þeirra um að hann tengdist hryðjuverkastarfsemi á einhvern hátt. Þá hafi hann verið fluttur með leynd til Albaníu og látinn þar laus einn síns liðs í fjallshlíð. Mannréttindadómstóllinn segir engan marktækan vafa leika á því að frásögn hans sé sönn. Mál el Masris er eitt af fjölmörgum sem snúast um ólögleg mannrán bandarísku leyniþjónustunnar, ólöglega leyniflutninga með fórnarlömb slíkra mannrána og pyntingar og misþyrmingar þeirra í fangelsum leyniþjónustunnar, allt í tengslum við baráttu Bandaríkjastjórnar gegn hryðjuverkum. Þetta er fyrsti dómur Mannréttindadómstólsins í slíku máli, en einungis var skoðaður hlutur Makedóníustjórnar í afdrifum el Masris. Samkvæmt úrskurðinum ber Makedónía ábyrgð á misþyrmingum sem el Masri sætti í Makedóníu og eftir að hann var fluttur til Afganistans. Makedóníustjórn segist fallast á þessa niðurstöðu og hyggst greiða el Masri bæturnar. Bandaríska leyniþjónustan hefur neitað að tjá sig um dóminn. El Masri barðist árum saman fyrir því að fá mál sitt tekið fyrir hjá dómstólum í Bandaríkjunum og í Evrópuríkjum. Árið 2010 var el Masri dæmdur í fangelsi í Þýskalandi fyrir líkamsárás á borgarstjórann í þýsku borginni Ulm. Eftir það sleit hann allt samband við fjölskyldu sína og lögmenn. „Ég vona að þetta gefi honum örlítið meiri trú aftur á það að jafnvel lítill maður sem flækist inn í glæpi stórra ríkja geti átt möguleika á að njóta réttinda sinna,“ segir Manfred Gnjidic, lögmaður Masris. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Fleiri fréttir Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Sjá meira