Sport

Þormóður tapaði og er úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í ExCeL-höllinni skrifar
Mynd/Valli
Þormóður Jónsson hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í London eftir að hafa tapað fyrir Rafael Silva frá Brasilíu í 32-manna úrslitum +100kg flokks.

Silva er í þriðja sæti heimslistans og ríkjandi Ameríkumeistari í greininni. Það var því ljóst að það yrði við ramman reip að draga fyrir okkar mann.

Glíman var stutt - aðeins ein mínúta og 48 sekúndur. Silva tókst ætlunarverk sitt og festi hægri höndina yfir Þormóð og felldi hann með krækja í hnéð. Þormóður féll í gólfið með miklum dynk.

Þormóður gerði þó vel í að verjast Silva fram að því. Brasilíumaðurinn er bestur með báðar hendur um kragann og kom hann sér strax í þá stöðu. Þormóður reyndi að verjast hægri höndinni hans en að lokum þá náði Silva að festa hana og komst í sóknina sem tryggði honum sigurinn.

Það reyndist því stutt gaman fyrir Þormóð sem barðist þó hetjulega gegn einum allra besta júdómanni heims. Því miður dugði það ekki til.

Fylgst var með gangi mála hér á Vísi:

8.56: Þormóður er úr leik. Hann tapaði á ippon eftir 1:48 mínútu. Hann barðist hetjulega en það dugði ekki til. Því miður. Nánari umfjöllun síðar.

8.54: Þormóður og Silva eru mættir á gólfið og byrjaðir að glíma! Þetta gerist fljótt.

8.53: Nú eigast við þvílíkir boltar á mottu 1. Kappi frá Gvam gegn öðrum frá Gíneu. Sá fyrrnefndi lítur reyndar út fyrir að hann eigi frekar heima í súmó.

8.52: Silva og Þormóður mættust í febrúar í fyrra á heimsbikarmóti í Varsjá. Það var í bronsglímu og vann Silva á ippon.

8.50: Rafael Silva, andstæðingur Þormóðs, er í þriðja sæti heimslistans og er ríkjandi Ameríkumeistari í þessum þyngdarflokki. Hann hafði áður unnið tvö silfurverðlaun á Ameríkuleikunum auk þess sem hann hefur unnið fimm heimsbikarmót á ferlinum og komist á pall alls fimmtán sinnum.

8.48: Nú er þriðja glíman í gangi á mottu 2 og styttist því í Þormóð.

8.43: Besta leiðin til að vinna er með fullnaðarsigri - ippon. Það fæst til dæmis með því að skella andstæðingnum á bakið. Waza-ari er gefið þegar að andstæðingnum er skellt en með ekki sama krafti og í ippon, eða þá að hann lendir ekki á bakinu. Waza-ari er einnig gefið þegar andstæðingnum er haldið á bakinu í 20-25 sekúndur. Eitt waza-ari gefur tíu stig og tvö samsvarar fullnaðarsigri.

Yuko gefur eitt stig en Waza-ari trompar alltaf yuko - sama hversu mörg stig andstæðingurinn er með.

8.42: Andreas Tölzer frá Þýskalandi, næstefsti maður heimslistans, komst einnig áfram en hann glímdi fyrstu glímu á mottu 2. Hann vann fullnaðarsigur með tvöföldu waza-ari.

8.37: Riner vann fyrstu viðureignina sína á waza-ari og þar með á stigum, 10-0. Hann hafði nú ekki mikið fyrir þessu. Var rólegur og þreytti Pólverjann, sem var þyngri en hann. Riner var afar vel studdur hér í höllinni og margir sem búast við því að hann fari alla leið í dag.

8.30: Ballið er byrjað og stemningin er algjörlega mögnuð. Fólk er enn að týnast inn en þeir allra hörðustu eru löngu mættir, sérstaklega til að fylgjast með Frakkanum Teddy Riner sem hefur verið ósigrandi í þessum þyngdarflokki síðustu árin. Hann mætir nú sterkum Pólverja.

8.27: Smelltu hér til að lesa viðtal við Þormóð sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þar fer hann yfir andstæðing sinn, Brasilíumanninn Rafael Silva, og hvernig hann hyggst takast á við hann.

8.26: Þetta byrjar allt saman klukkan 8.30 en keppt er á tveimur mottum. Glíma Þormóðs er sú fimmta í röðinni á mottu tvö og mun það ráðast af því hversu langar aðrar viðureignir eru hvenær hann muni keppa.

8.20: Góðan og blessaðan daginn. Blaðamaður er mættur hingað í ExCeL-höllina í London þar sem keppt er í nokkrum íþróttagreinum á Ólympíuleikunum, þar á meðal júdó. Hér mun okkar maður, Þormóður Árni Jónsson - Móði Massi, keppa í þungavigt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×