Sport

Sarah þarf að keppa um laust sæti í undanúrslitum

Sarah Blake Bateman er hér lengst til hægri á myndinni.
Sarah Blake Bateman er hér lengst til hægri á myndinni. Vilhelm
Sarah Blake Bateman kom fyrst mark í sínum riðli í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í London í morgun. Sarah, sem er 22 ára og syndir fyri Sundfélagið Ægi, kom í mark á 25,28 sek., en Íslandsmet hennar er 25,24 sem hún setti í Ungverjalandi á þessu ári.

Tvær sundkonur voru á nákvæmlega sama tíma og Sarah, Kara Lynn Joice frá Bandaríkjunum og Amy Smith frá Bretlandi og eru þær jafnar í 16.-18. sæti.

Alls komast 16 sundkonur í undanúrslit í þessari grein og þarf Sarah því að synda aftur ásamt þeim Joice og Smith, þar sem þær keppa um eitt laust sæti í undanúrslitum í 50 metra skriðsundi.

Úrslitasundið fer fram um kl. 11 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×