Sport

Eva: Stolt af stelpunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Mynd/Valli
Eva Hannesdóttir fékk loksins að keppa á Ólympíuleikunum í morgun þegar boðsundssveit Íslands keppti í 4x100 m fjórsundi.

Sveitinni tókst ekki að bæta Íslandsmet sitt en hafnaði í fimmtánda sæti og var nálægt metinu.

„Þetta var allsvakalegt. Ótrúlega flott og ég er stolt af stelpunum. Við hefðum varla getað gert þetta betur. Við erum mjög sáttar við þetta allt saman,“ sagði Eva.

Sjálf var hún ánægð með sprettinn sinn en hún synti á 56,12 sekúndum sem er betri tími en hún synti á í 100 m skriðsundi á EM í Ungverjalandi í maímánuði. Þá synti hún á 56,42 sekúndum.

Þetta var eina grein Evu á leikunum en hún hefur þurft að bíða lengi eftir því að keppa. „Ég hafði fulla viku til að undirbúa mig og það var fínt að fá þennan tíma til að venjast því að vera í þessu umhverfi.“

„Ég var samt orðin ótrúlega spennt fyrir því að fá loksins að stinga mér í laugina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×