Lady Gaga og Julian Assange eyddu kvöldi saman 9. október 2012 10:20 Lady Gaga og Julian Assange.
Stórstjarnan Lady Gaga, sem mun taka á móti LENNON/ONO friðarverðlaunum í Hörpu í dag, hitti stofnanda WikiLeaks um helgina, skömmu eftir að hún hafði kynnt nýtt ilmvatn í versluninni Harrods í Lundúnum. Það vill svo til að sendiráð Ekvadors var hinu megin við götuna þar sem Gaga kynnti nýja ilmvatnið sitt. Dívan mætti klukkustund of seint á eigin kynningu og eftir nokkra stund fór hún yfir götuna til Julian Assange, sem dvelur í sendiráðinu. Eyddu þau svo kvöldinu saman. Samkvæmt breskum fjölmiðlum borðuðu þau saman en ekkert hefur verið gefið út hvað þau ræddu þær fimm klukkustundir sem þau dvöldu saman í sendiráðinu. Eins og kunnugt er þá er Julian Assange í stofufangelsi í sendiráðinu vegna framsalskröfu sænskra stjórnvalda sem breskir dómstólar féllust á fyrr á árinu vegna kæra um kynferðisbrot. Assange hefur fengið hæli í Ekvador en gallinn er auðvitað sá að til þess að komast þangað þarf hann fyrst að stíga á breska grund. Og þá verður hann umsvifalaust handtekinn. Breskir fjölmiðlar velta mikið fyrir sér heimsókn Lady Gaga til Assange, sem hefur ekki verið álitinn hluti af poppmenningu heimsins. En eins og Íslendingar vita þá dvaldi Assange nokkuð lengi hér á landi, og má því vera að Lady Gaga hafi verið að spjalla við hann um land og þjóð. Tónlistarkonan mun taka á móti verðlaununum klukkan tvö í Hörpunni í dag.
Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Sjá meira