Lífið

Næstum því nakin Christina

Söngkonan og The Voice-dómarinn Christina Aguilera er búin að afhjúpa myndina sem prýðir hulstur nýjustu smáskífu hennar, Your Body. Christina sýndi aðdáendum sínum herlegheitin á Twitter og hefur myndin vakið talsverða athygli. Christina er nefnilega nánast nakin á myndinni og umvafin gagnsæju, bleiku efni.



Lagið Your Body fer í spilun vestan hafs í dag og verður hægt að kaupa það á iTunes þann 17. september. Christina hefur ekki gefið út breiðskífu síðan hún gaf út Bionic árið 2010 og er spennt að leyfa heiminum að heyra tónlist sína.

"Ef þú elskaðir lagið Fighter áttu eftir að elska nýju plötuna mina," segir Christina í viðtali við tímaritið Lucky.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.