Sport

Magnaðar myndir frá fyrstu keppnisdögunum á ÓL fatlaðra í London

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AFP
Ólympíumót fatlaðra er nú komið í fullum gang í London. Það er gríðarlegur áhugi á mótinu meðal Englendinga og nær fullt á alla viðburði. Það er líka stórbrotið að fylgjast með keppnisgleði og tilþrifum keppenda mótsins.

Þó að íslensku keppendurnir fái frí í dag verður engu að síður mikið um að vera í London á Ólympíumóti fatlaðra. Þegar hafa 11 Ólympíumótsmet og 11 heimsmet fallið og 16 af 21 grein á mótinu er komin í gang.

Ljósmyndarar AFP-fréttastofunnar eru að sjálfssögðu mættir til London og hafa þeir þegar náð mörgum mögnuðum myndum

myndum af keppni á fyrstu tveimur dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×